Áttföld eftirspurn eftir bréfum í Play

Hlutafjárútboði Play sem hófst í gærmorgun lauk klukkan 16 í dag. Alls bárust áskriftir fyrir hlutum fyrir 33,8 milljarða króna, eða margfalt umfram það sem var til sölu.

Play flugvél Mynd: Play
Auglýsing

Alls bár­ust til­boð upp á 33,8 millj­arða króna í hluta­bréf í flug­fé­lag­inu Play í útboði sem hófst í gær og lauk klukkan 16 í dag. Til sölu voru hlutir fyrir 4,3 millj­arða króna. Því var umfram­eft­ir­spurn eftir bréfum átt­föld.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Play til Kaup­hallar Íslands en félagið verður skráð á First North mark­að­inn í kjöl­far hluta­fjár­út­boðs­ins.

Play flaug sitt fyrsta áætl­un­ar­flug í gær, fimmtu­dag, til London.

Í útboðs­lýs­ingu félags­ins kom fram að þessi fjár­mögnun sem sótt var með útboð­inu muni hjálpa lausa­fjár­stöðu þess enn frekar, en Play seg­ist nú þegar hafa náð að safna tæpum sjö millj­örðum króna í fjár­mögn­un.

Auglýsing
Búist er við að almenn við­skipti með hluti í Play hefj­ist föstu­dag­inn 9. júlí.

Í útboðs­lýs­ingu sagði að Play búist við því að selja selja jafn­mörg sæti og WOW air gerði árið 2017 innan fjög­urra ára. Það stefnir á að hefja flug til Banda­ríkj­anna næsta vor, en mun halda starfs­manna­kostn­aði í lág­marki með því að láta starfs­menn sína vinna lengur en starfs­menn ann­arra flug­fé­laga og taka færri frí­daga en starfs­menn WOW air tóku.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu Kjarn­ans um útboðið hér.

­Arct­ica Fin­ance hafði umsjón með hluta­fjár­út­boð­inu og Arion banki var sölu­að­ili ásamt Arct­ica Fin­ance. Stjórn Play mun nú yfir­fara þær áskriftir sem bár­ust í útboð­inu og taka afstöðu til þeirra. Áætlað er að nið­ur­staða varð­andi úthlutun liggi fyrir eigi síðar en í lok dags 28. júní.

Birgir Jóns­son, for­stjóri Play, segir í til­kynn­ingu að það hafi verið mjög ánægju­legt að sjá skrán­ingar frá almenn­ingi og ekki síður líf­eyr­is­sjóðum í eigu almenn­ings. „Í þokka­bót fáum við svo aflétt­ingu sótt­varn­ar­tak­mark­ana á mið­nætti. Við getum því senni­lega leyft okkur smá bjart­sýni á fram­haldið enda held ég að sjaldan hafi flug­fé­lag verið eins vel und­ir­bú­ið, eða jafn vel fjár­magn­að, til að nýta þau tæki­færi sem gef­ast. Við sjáum ekki heldur annað en að áhugi fjár­festa end­ur­spegli þessa bjart­sýni sem við finnum fyrir og það sé ein­hugur hjá þjóð­inni gagn­vart því að byggja upp ferða­þjón­ust­una á Íslandi á ný, en við hjá PLAY ætlum okkur að leika risa­stórt hlut­verk þar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent