Atvinnulausir þurfi ekki lengur að treysta á jólagjöf frá ríkisstjórninni

Með fyrirhuguðum breytingum á lögum um atvinnuleysistryggingar verður það ekki lengur háð ákvörðun ríkisstjórnar hvort atvinnuleitendur fái desemberuppbót. Réttur atvinnuleitenda til desemberuppbótar verður tryggður í lögum, ef frumvarpið fæst samþykkt.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Auglýsing

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur lagt fram drög að laga­breyt­ingum í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, sem fela það í sér að í lögum verði skýrt kveðið á um að greiða skuli des­em­ber­upp­bætur á grunnatvinnu­leys­is­bæt­ur.

Sam­kvæmt gild­andi lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar hefur ráð­herra heim­ild til að ákveða að greiða des­em­ber­upp­bætur til atvinnu­leit­enda, að fengnu sam­þykki rík­is­stjórnar hverju sinni. Reglu­gerð um upp­bæt­urnar til atvinnu­leit­enda hefur jafnan verið und­ir­rituð undir lok nóv­em­ber á und­an­förnum árum.

Ásmundur Einar Daðason fyrrverandi félags- og barnamálaráðherra undirritar hér reglugerð um desemberuppbót atvinnuleitenda árið 2020. Mynd: Stjórnarráðið

Frum­varp um þessar breyt­ing­ar, sem eiga að stuðla að auknum fyr­ir­sjá­an­leika fyrir ein­stak­linga sem eru án atvinnu, var samið í sam­starfi við nefnd sem hefur það hlut­verk að end­ur­skoða lög um atvinnu­leys­is­trygg­ingar í heild sinni, en í þeirri nefnd eiga sæti full­trúar frá ASÍ, BHM, BSRB, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, Sam­bandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, SA og Vinnu­mála­stofn­un.

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að þessi breyt­ing hafi verið talin þess eðlis að ekki þætti rétt að bíða með þær þar til heild­ar­end­ur­skoðun á lög­unum lýk­ur.

Auglýsing

Sam­kvæmt frum­varps­drög­unum eiga allir þeir sem telj­ast tryggðir sam­kvæmt lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar og stað­festa atvinnu­leit á tíma­bil­inu 20. nóv­em­ber til 3. des­em­ber rétt á sér­stakri des­em­ber­upp­bót á grunnatvinnu­leys­is­bætur í sam­ræmi við lengd þess tíma sem fólk hefur verið skráð án atvinnu og trygg­inga­hlut­fall við­kom­andi á þeim tíma.

Des­em­ber­upp­bótin var 92.229 krónur í fyrra

Gert er ráð fyrir að hámarks­fjár­hæð des­em­ber­upp­bót­ar­innar skuli nema 30 pró­sentum af óskertum grunnatvinnu­leys­is­bótum á ári hverju og að lág­marks­fjár­hæð verði 25 pró­sent af hámarks­fjár­hæð des­em­ber­upp­bót­ar. Enn fremur er gert ráð fyrir að Vinnu­mála­stofnun skuli greiða út des­em­ber­upp­bætur á grunnatvinnu­leys­is­bætur eigi síðar en 15. des­em­ber ár hvert.

Lagt til að ráð­herra skuli setja reglu­gerð þar sem nánar er kveðið á um skil­yrði fyrir greiðslu des­em­ber­upp­bótar á grunnatvinnu­leys­is­bæt­ur.

Á síð­asta ári nam hámarks­fjár­hæð des­em­ber­upp­bótar til atvinnu­leit­enda 92.229 krónum og lág­marks­fjár­hæðin var 23.057 krón­ur. Til við­bótar voru svo greiddar 5.534 krónur með hverju barni á fram­færi atvinnu­leit­anda, eða sem nemur sex pró­sentum af óskertri des­em­ber­upp­bót.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent