Atvinnuleysi ekki minna síðan í desember 2018 en langtímaatvinnulausir eru mun fleiri

Þótt atvinnuleysi sé hverfandi á Íslandi í dag þá eru mun fleiri langtímaatvinnulausir nú en fyrir kórónuveirufaraldur. Atvinnuleysi erlendra ríkisborgara fer minnkandi þótt erlendir séu nú hlutfallslega stærri hluti af atvinnulausum en í sumar.

Störfum í byggingaiðnaði hefur fjölgað mikið undanfarin misseri.
Störfum í byggingaiðnaði hefur fjölgað mikið undanfarin misseri.
Auglýsing

Alls voru 2,8 pró­sent vinnu­færra lands­manna án atvinnu í lok sept­em­ber, eða 5.409 manns. Það er minnsta atvinnu­leysi sem hefur mælst hér á landi frá því í des­em­ber 2018, eða í næstum fjögur ár.

Á meðan að á kór­ón­u­veiru­far­aldr­inum stóð mæld­ist atvinn­u­­leysið mest í jan­úar 2021, 11,6 pró­­­sent, og heild­­­ar­at­vinn­u­­­leysi að með­­­­­töldum þeim sem enn voru á hluta­bótum í þeim mán­uði var 12,8 pró­­­sent. Það þýddi að alls 26.403 voru annað hvort atvinn­u­­lausir að öllu leyti eða í minn­k­uðu starfs­hlut­­falli á þeim tíma, eða um 21 þús­und fleiri en um síð­­­ustu mán­aða­­mót.

Í upp­hafi þessa árs var það komið niður í 5,2 pró­sent og hefur næstum helm­ingar síðan þá.

Þetta kemur fram í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­un­ar. Hún­Atvinnu­leysi ekki minna síðan í des­em­ber 2018 en lang­tíma­at­vinnu­lausir mun fleiri spáir því að atvinnu­leysið muni ekki breyt­ast mikið í októ­ber. Nú er enda staðan sú hér­lendis að skortur er á starfs­­fólki og þau störf sem verða til í hag­­kerf­inu eru að stórum hluta fyllt af erlendu starfs­­fólki, sem er nú um 20 pró­­sent af öllu vinn­u­afli hér­­­lend­­is. 

Í nýlegri könnun sem gerð var á meðal stjórn­­enda 400 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins sagði 54 pró­­sent þeirra að skortur væri á vinn­u­afli. Hlut­fall fyr­ir­tækja sem segja að það sé skortur á starfs­fólki hefur ein­ungis einu sinni mælst hærra, árið 2007 þegar banka­góð­ærið var í hámarki.

Lang­tíma­at­vinnu­leysið meira en það var

Í síð­­­ustu mán­aða­­skýrslu Vinn­u­­mála­­stofn­unar kemur fram að 2.279 manns verið atvinn­u­­lausir í meira en tólf mán­uði í lok sept­em­ber. Það eru mun fleiri en glímdu við slíkt atvinn­u­­leysi fyrir far­ald­­ur­inn. Í febr­­úar 2020, þegar atvinn­u­­leysi var hlut­­falls­­lega meira en það er núna, höfðu 1.893 verið án atvinnu í ár eða leng­­ur. Í des­em­ber 2018, þegar atvinnu­leysi var síð­ast svona lít­ið, voru ein­ungis 977 skil­greindir sem lang­tíma­at­vinnu­laus­ir, eða 43 pró­sent þeirra sem eru það í dag. Vert er að hafa í huga að starf­andi ein­stak­lingum hefur fjölgað á síð­ustu fjórum árum sam­hliða fjölgun starfa.

Auglýsing
Fjöldi lang­­tíma­at­vinn­u­­lausra er því 20 pró­­sent meiri nú en hann var þá, í minna atvinn­u­­leysi. Í febr­­úar 2020, þegar atvinn­u­lífið var enn að glíma við afleið­ingar af gjald­­þroti WOW air og loðn­u­brest, voru 21 pró­­sent allra atvinn­u­­lausra flokk­aðir lang­­tíma­at­vinn­u­­lausir en nú er það hlut­­fall 42 pró­­sent og hefur farið vax­andi á und­an­förnum mán­uð­um.

Erlendir 43 pró­sent atvinnu­lausra

Atvinn­u­­leysi  hjá erlendum rík­­is­­borg­­urum hefur farið lækk­andi á síð­ustu mán­uðum og mælist nú 5,8 pró­sent. Til sam­an­burðar var það 7,3 pró­sent í lok júlí. Alls voru 2.505 erlendir atvinnu­leit­endur án atvinnu í lok sept­em­ber, sem er 337 færri en tveimur mán­uðum fyrr. 

Hlut­falls­lega eru erlendir rík­is­borg­arar þó stærri hluti af atvinnu­lausum en þeir voru í sum­ar. Í júlí voru þeir 43 pró­sent allra í atvinnu­leit en í dag eru þeir rúm­lega 46 pró­sent. 

Alls bjuggu 61.047 erlendir rík­­is­­borg­­arar á Íslandi í byrjun sept­em­ber. Þeir eru 15,9 pró­­sent allra íbúa. Því liggur fyrir að atvinn­u­­leysi er mun meira á meðal þeirra en íslenskra rík­­is­­borg­­ara.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent