Hluti öryrkja greiðir yfir 75 prósent ráðstöfunartekna sinna í húsnæðiskostnað

ÖBÍ segir að þær forsendur sem lántakar sem tóku óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum á undanförnum árum, á meðan að stjórnvöld töluðu um að lávaxtarskeið væri hafið, séu „algjörlega brostnar og eru mörg heimili með alltof háa greiðslubyrði.“

Þuríður Harpa Sigurðardóttir er formaður ÖBÍ og er skrifuð, ásamt öðrum starfsmanni, fyrir umsögninni.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir er formaður ÖBÍ og er skrifuð, ásamt öðrum starfsmanni, fyrir umsögninni.
Auglýsing

Í könnun sem Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Öryrkja­banda­lag Íslands (ÖBÍ) í sum­ar, og fjall­aði um hús­næð­is­stöðu öryrkja, kom í ljós að ell­efu pró­sent svar­enda greiddu yfir 75 pró­sent ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í rekstur hús­næð­is. Inni í þeirri tölu eru afborg­anir lána, leigu­kostn­aður hiti og raf­magn.

Þetta kemur fram í umsögn ÖBÍ um frum­varp þing­manna Flokks fólks­ins um breyt­ingu á lögum um vexti og verð­trygg­ingu og húsa­leigu­lög­um. Þar segir enn fremur að nið­ur­stöður könn­un­ar­innar verði birtar opin­ber­lega á næstu vik­um. 

Í umsögn­inni segir að ætla megi að tekju­lágt fólk velji frekar að taka verð­tryggð hús­næð­is­lán vegna lægri afborg­ana í því vaxtaum­hverfi sem ríkt hafi á hús­næð­is­mark­aði, sér­stak­lega síð­ast­liðið ár. „Verð­bólgan er mjög há nú um stundir og alls óvíst hvort hún komi til með að lækka, hækka eða standa í stað næstu miss­eri. Greiðslu­byrði lán­taka hefur þyngst veru­lega og þá sér­stak­lega hjá þeim hóp sem tók óverð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum á þeim tíma sem stjórn­völd töl­uðu á þann hátt að nú væri lávaxt­ar­skeið haf­ið. Þær for­sendur sem þessir lán­takar settu sér eru algjör­lega brostnar og eru mörg heim­ili með alltof háa greiðslu­byrð­i.“

Auglýsing
ÖBÍ telur hættu á að þessi hópur muni þurfa selja eign­irnar sínar á næstu miss­erum og fara þá jafn­vel á leigu­mark­að­inn. „Sam­kvæmt leigukönnun sem Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun (HMS) lét fram­kvæma árið 2021 jókst hlut­fall leigu af ráð­stöf­un­ar­tekjum milli áranna 2020 til 2021. Með­al­hlut­fall leigu­kostn­aðar af ráð­stöf­un­ar­tekjum er 44 pró­sent sem gefur til kynna mjög mikla greiðslu­byrði vegna leigu­kostn­að­ar. Í könn­un­inni kemur einnig fram að tæp 30 pró­sent öryrkja greiða meira en 50 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu. Þar sem flest allir leigu­samn­ingar eru tengdir vísi­tölu má gera ráð fyrir að þessi greiðslu­byrði hafi hækkað þrátt fyrir auk­inn hús­næð­is­stuðn­ing stjórn­valda í sum­ar.“

Gríð­ar­legar hækk­anir á afborg­unum óverð­tryggðra lána

Verð­bólga mælist sem stendur 9,3 pró­sent. Í slíku ástandi hækkar höf­uð­stóll verð­tryggðra lána mikið enda leggj­ast verð­bætur á hann. Á móti hald­ast afborg­anir skap­legri, enda þeim í raun ýtt inn í fram­tíð­inni.

Til að sporna við þess­ari stöðu hefur Pen­inga­­stefn­u­­nefnd Seðla­­banka Íslands hækkað stýri­vexti úr 0,75 í 5,75 pró­sent frá því í maí í fyrra. Vextir hafa verið hækk­aðir á við síð­­­ustu níu vaxta­á­kvarð­­anir nefnd­­ar­inn­­ar, en þeir voru 0,75 pró­­sent í maí í fyrra. 

Hækkun stýri­­vaxta skilar sér í hækkun á afborg­unum óverð­­tryggðra lána sem eru með breyt­i­­lega vexti. Í nýjasta Fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika­­riti Seðla­­banka Íslands kom fram að ​​um 28 pró­­sent útistand­andi fast­­eigna­lána eru óverð­­tryggð og með breyt­i­­legum vöxt­­um. Sam­an­lögð upp­­hæð þeirra eru á sjö­unda hund­rað millj­­arða króna. Vaxta­­byrði slíkra lána hefur þegar hækkað veru­­lega. 

Í rit­inu var nefnt að vegnir með­­al­vextir nýrra íbúða­lána sem veitt voru af bönk­­unum í júlí 2021 voru 3,7 pró­­sent en ári síðar voru þeir komnir upp í 6,6 pró­­sent. Fyrir 40 millj­­óna króna óverð­­tryggt jafn­­greiðslu­lán til 40 ára á breyt­i­­legum vöxtum felur slík vaxta­hækkun í sér rúm­­lega 77 þús­und króna hækkun á mán­að­­ar­­legri greiðslu­­byrði eða sem sam­svarar tæpum 48 pró­­sent af upp­­haf­­legri greiðslu­­byrði láns­ins.“

Óverð­­tryggðir vextir stóru bank­anna þriggja, sem halda á 72 pró­­sent af útistand­andi íbúð­ar­lán­um, hafa ekki verið jafn háir og þeir eru nú síðan 2015.

Þá stytt­ist í end­­ur­­skoðun á vaxta­­kjörum fjölda óverð­­tryggðra lána sem veitt voru á föstum vöxtum til til­­­tek­ins tíma, en alls verða vextir á lánum upp á 340 millj­­arða króna end­­ur­­skoð­aðir á árunum 2023 og 2024 og vextir á lánum upp á 250 millj­­arða króna koma til end­­ur­­skoð­unar árið 2025. Þorri þeirra lána eru óverð­­tryggð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent