Auglýsingaherferð, ekki hakkarar

Skilaboð á rafrænum auglýsingaskiltum á höfuðborgarsvæðinu þess efnis að skiltin hafi verið „hökkuð“ eru hluti af auglýsingaherferð, en ekki til marks um netárás á rekstraraðila skiltanna.

Skilaboð sem birtust á auglýsingaskilti í morgun.
Skilaboð sem birtust á auglýsingaskilti í morgun.
Auglýsing

Skila­boð sem sést hafa á umhverf­is­aug­lýs­inga­skiltum víða um höf­uð­borg­ar­svæðið í morgun eru hluti af nýrri aug­lýs­inga­her­ferð, en ekki verk ein­hverra tölvu­þrjóta.

Þetta segja starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins Bill­bo­ard, sem meðal ann­ars rekur aug­lýs­inga­skiltin sem eru í strætó­skýlum borg­ar­inn­ar.

Blaða­maður Kjarn­ans fékk þau svör hjá starfs­mönnum Bill­bo­ard að það kæmi í ljós kl. 14 í dag hvaða aðilar stæðu að baki þess­ari her­ferð, sem vakið hefur nokkra athygli á sam­fé­lags­miðlum það sem af er degi.

Auglýsing

Á strætó­skýlum og fleiri aug­lýs­inga­skiltum mátti meðal ann­ars lesa, á ensku, að það yrðu engar aug­lýs­ingar í dag heldur „bara ég og öll gögnin þín“, að ein­hverjum gögnum hefði verið læst og að 30 þús­und doll­ara greiðslu í raf­mynt­inni Bitcoin væri kraf­ist.

Á aug­lýs­inga­skilti í grennd við Kringl­una mátti meðal ann­ars sjá mynd af haus­kúpu og í frétt sem mbl.is birti sagði að lík­legt mætti telja að „hrekkj­óttur tölvu­hakk­ari eða -hakk­arar hafi verið þarna [að] verki og brotið sér leið inn í tölvu­kerfi skilt­is­ins“ og svo látið að því liggja að tölvu­áras hafi verið gerð í til­efni þess að í dag er hrekkja­vöku­dag­ur­inn.

Svo er hins vegar ekki, heldur er þarna um aug­lýs­inga­her­ferð að ræða, sem áður seg­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent