Auknar líkur á hröðum vaxtahækkunum í Bandaríkjunum

Líkurnar á hraðri hækkun stýrivaxta Bandaríkjunum hafa aukist eftir væntingar um jákvæðar vinnumarkaðstölur, en sérfræðingar búast nú við tæplega þriggja prósenta vöxtum fyrir lok næsta árs.

New York
Auglýsing

Störfum í Banda­ríkj­unum gæti hafa fjölgað um allt að 490 þús­und í síð­asta mán­uði, eftir því sem eft­ir­spurn í land­inu hefur auk­ist og kór­ónu­veirutil­fellum hefur fækkað hratt. Slíkar tölur myndu gefa Seðla­banka Banda­ríkj­anna tæki­færi til að hækka stýri­vext­ina sína, en þeir gætu nálg­ast tveimur pró­sentum fyrir árs­lok og þremur pró­sentum fyrir lok árs­ins 2023. Þetta kemur fram í umfjöll­unum Fin­ancial Times og New York Times um vinnu­mark­aðs­tölur fyrir mars­mánuð í Banda­ríkj­un­um, sem koma út í dag.

Erfitt að manna stöður

Sam­kvæmt umfjöll­un­unum er ekki búist við að atvinnu­þátt­taka verði komin á sama stað og fyrir far­ald­ur­inn, þar sem fjöldi fólks hefur ákveðið að yfir­gefa vinnu­mark­að­inn. Atvinnu­leysið mælist hins vegar lágt, en gert er ráð fyrir að það hafi numið 3,7 pró­sentum í mars.

Seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, Jer­ome Powell, sagði í nýlegri ræðu að spennan á vinnu­mark­aði væri mjög mikil þessa stund­ina og enn meiri en hún var fyrir far­ald­ur­inn, þar sem erfitt hefur reynst að manna störf. Hann bætti við að tæp­lega tvö laus störf væru fyrir hvern starfs­mann, en sam­kvæmt honum er það merki um óheil­brigða fram­leiðslu­spennu.

Auglýsing

Met­verð­bólga og vaxta­hækk­anir

Líkt og á öðrum Vest­ur­löndum hefur verð­lag einnig hækkað hratt í Banda­ríkj­un­um, en verð­bólgan þar nam 7,9 pró­sentum í febr­úar og hefur ekki verið jafn­mikil í 40 ár. Þar vógu þungt miklar orku­verðs­hækk­an­ir, en búist er við að þær muni verða enn meiri á næstu mán­uðum vegna inn­rásar Rúss­lands í Úkra­ínu.

Vegna verð­bólg­unnar og auk­innar fram­leiðslu­spennu hækk­aði Seðla­banki Banda­ríkj­anna stýri­vexti sína fyrir tveimur vikum síð­an, en það var fyrsta vaxta­hækkun hans frá árinu 2018. Sam­kvæmt frétt Fin­ancial Times býst stjórn­mála­fólk vest­an­hafs við því að stýri­vextir þar, sem eru nú á milli 0,25 pró­sent og 0,5 pró­sent, muni nálg­ast tveimur pró­sentum fyrir árs­lok. Fyrir lok næsta árs er svo búist við að vext­irnir verði komnir upp í 2,8 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent