Bændur mótmæla rop- og prumpskatti

Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi áforma að leggja skatt á losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði, m.a. búfénaðinum sjálfum. Bændur blása á þau rök að þetta muni gagnast þeim þegar upp verði staðið.

Nýsjálenskar kindur á beit.
Nýsjálenskar kindur á beit.
Auglýsing

Trakt­orar og pall­bílar fylltu í dag götur borga og bæja á Nýja-­Sjá­landi í mót­mælum sem bændur standa fyr­ir. Fólkið er að mót­mæla áformum stjórn­valda um nýjan skatt á losun hús­dýra – það er segja losun þeirra á gróð­ur­húsa­loft­teg­und­um. Bænd­urnir vilja að stjórn­völd hverfi frá skatt­lagn­ing­unni sem þeir hafa upp­nefnt rop- og prumpskatt­inn.

Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-­Sjá­lands, kynnti skatta­á­formin í síð­ustu viku. Skatt­ur­inn yrði, að því er fram kemur í frétt Al Jazeera um mál­ið, sá fyrsti sinnar teg­undar í heim­in­um. Skatt­lögð yrði losun frá land­bún­aði, m.a. á met­ani, sem sex millj­ónir naut­gripa og 26 millj­ónir kinda ropa út í and­rúms­loftið á hverjum degi.

Auglýsing

Ardern segir þessa nýju skatt­lagn­ingu nauð­syn­lega aðgerð í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ing­um. Hún hefur nefnt að mögu­lega muni bændur í reynd hafa hag af þessu þar sem þeir geti þá mark­aðs­sett lofts­lagsvænna kjöt en áður.

Nýsjá­lenskir bændur hafa margir hverjir blásið á þennan rök­stuðn­ing og hóp­uð­ust sem fyrr segir út á stræti og torg í dag og mót­mæltu undir yfir­skrift­inni: „Við munum ekki sætta okkur við þetta“.

Bryce McKenzie var meðal þeirra sem skipu­lögðu mót­mæl­in. Hann segir við Al Jazeera að þessi nýja stefna stjórn­valda, að skatt­leggja enn frekar mat­væla­fram­leiðslu, muni bitna á dreifð­ari byggðum og bænd­um.

Þurrkar hafa einkennt veðurfar Nýja-Sjálands og Ástralíu undanfarið. Á milli hefur svo gert úrhelli og mikil flóð tekið við. Hér má sjá kindahjörð á gangi eftir skraufaþurrum jarðvegi í Ástralíu. Mynd: EPA

Stjórn­völd von­ast til þess að skatt­ur­inn verði til þess að draga úr losun frá búfén­aði um 20 pró­sent. McKenzie segir hins vegar að aðgerðin muni hafa þau áhrif að bændur í öðrum lönd­um, þar sem umhverf­is­mál eru ekki tekin eins föstum tökum og á Nýja-­Sjá­landi, muni taka stærri hluta mark­að­ar­ins.

Útblástur metangass er mun minni en koldí­oxíðs og það brotnar auk þess hraðar nið­ur. Hins vegar er það þess eðlis að það hefur mun meiri áhrif til hlýn­un­ar.

Sam­kvæmt vís­inda­rann­sóknum er talið að um 30 pró­sent af ástæð­unni fyrir hækkun hita­stigs á jörð­inni megi rekja til met­ans þrátt fyrir að gas­teg­undin sé aðeins brot af heildar útblæstri.

Auglýsing

En bænd­urnir voru ekki þeir einu sem mót­mæltu í dag. Segja má að mót­mæli gegn þeirra mót­mælum hafi farið fram í höf­uð­borg­inni Well­ington. For­svars­menn þeirra segja að þeir sem starfi í land­bún­að­ar­geir­anum verði að taka sína ábyrgð á lofts­lags­breyt­ing­um, að „taka þurfi umræð­una“ um þetta hita­mál. „Bændur verða að vera hluti af lausn­inn­i,“ hefur frétta­stofan RNZ eftir einum skipu­leggj­and­an­um.

„Lands­byggðin og land­bún­að­ur­inn á Nýja-­Sjá­landi hefur orðið illa úti vegna flóða, ofsa­vinda og þurrka und­an­far­ið. Og þetta á aðeins eftir að versna. Bændur verða annað hvort að aðlaga sig og draga saman losun hratt eða að þeir, líkt og allir aðr­ir, munu þjást enn meira [vegna lofts­lags­breyt­inga.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent