„Bágt að finna það hversu veikur maður er í stjórnarandstöðu“

Inga Sæland gagnrýnir að frumvarp hennar um bann við blóðmerahaldi hafi einungis verið tekið einu sinni til umfjöllunar hjá atvinnuveganefnd. Hún segir vont að upplifa valdaleysi í stjórnarandstöðu þrátt fyrir að vinna eins og „alvöru hestur“.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Auglýsing

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins gagn­rýndi á þingi í gær, undir liðnum störf þings­ins, að atvinnu­vega­nefnd hefði ein­ungis fjallað einu sinni um frum­varp hennar til breyt­inga á lögum um dýra­vel­ferð, þar sem bann við blóð­mera­haldi á Íslandi er lagt til.

Hún benti á að um frum­varpið hefðu komið fram 129 umsagnir til þings­ins, sem sé með því meira sem sjá­ist. Umsagn­ar­frestur rann út þann 17. jan­úar og Inga sagði að veita ætti þeim fjöl­mörgu sem sendu inn umsagnir tæki­færi til þess að fylgja þeim eftir við atvinnu­vega­nefnd­ina. Hins vegar hefði málið ein­ungis verið einu sinni á dag­skrá atvinnu­vega­nefnd­ar, sem Stefán Vagn Stef­áns­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks leið­ir.

Inga sagði „bágt að finna það hversu veikur maður er í stjórn­ar­and­stöðu þó maður sé fang­inn af vilja og vinni eins og ég veit ekki hvað – alvöru hestur – sem dregur alvöru þunga á eftir sér til að bæta stöð­una í sam­fé­lag­in­u“.

Búin að skipta sér inn í nefnd­ina

Flokks­for­mað­ur­inn ætlar sér þó greini­lega að reyna að koma mál­inu frekar á dag­skrá í atvinnu­vega­nefnd, því við upp­haf þing­fundar í gær til­kynnti Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis að Flokkur fólks­ins ætl­aði að skipta um full­trúa í nefnd­inni.

Inga sjálf kemur inn sem aðal­maður í stað Tómasar A. Tóm­as­sonar þing­manns flokks­ins, sem verður vara­maður í nefnd­inni.

Segir hags­muna­að­ila eflaust þrýsta á um að málið verði svæft

Inga gerir þetta mál að umtals­efni í pistli sínum í Morg­un­blað­inu í dag. Þar segir hún að fyrir atvinnu­vega­nefnd liggi nú um 10 þing­mál, sem þyki með minna móti og mála­fjöld­inn geti því ekki rétt­lætt að „þetta mik­il­væga mál fái ekki umfjöllun fyrir atvinnu­vega­nefnd“.

Auglýsing

Í pistli sínum segir flokks­for­mað­ur­inn að hags­muna­að­ilar séu eflaust að þrýsta á „þing­menn stjórn­ar­flokk­anna og hvetja þá til að svæfa málið í nefnd“ en segir Inga jafn­framt að hún voni „að þing­menn taki ekki ákvörðun um þing­mál út frá slíkum þrýst­ing­i.“

„Það er sorg­legt, ef það er virki­lega svo, að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir heyk­ist á því að taka utan um mál sem þjóðin kallar eftir að fái þing­lega með­ferð. Ég skora á atvinnu­vega­nefnd og for­mann nefnd­ar­inn­ar, Stefán Vagn Stef­áns­son, að taka utan um málið og koma því þannig inn að Alþingi Íslend­inga geti fjallað um málið og greitt um það atkvæð­i,“ skrifar Inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent