Bankastjóri Landsbankans með 4,5 milljónir á mánuði í laun og mótframlag í lífeyrissjóð

Greiðslur til bankastjóra og formanns bankaráðs Landsbankans, sem er í eigu íslenska ríkisins, hækkuðu á milli ára. Bankinn skilaði 28,9 milljarða króna hagnaði á síðasta ári og ætlar að greiða eiganda sínum að minnsta kosti 14,4 milljarða króna í arð.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Auglýsing

Laun Lilju Bjarkar Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra Lands­bank­ans, hækk­uðu um 3,2 millj­ónir króna í fyrra og voru 45,4 millj­ónir króna. Það þýðir að hún var með 3,8 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun að með­al­tali sem er um 263 þús­und krónum hærri laun á mán­uði en hún hafði að með­al­tali á mán­uði á árinu 2020. Laun hennar hækk­uðu því um sjö pró­sent milli ára.

Auk launa og hlunn­inda (sem í fel­ast til að mynda afnot af bif­reið í eigu bank­ans) fékk Lilja greitt mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð upp á 8,7 millj­ónir króna, eða 725 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali. Mót­fram­lags­greiðslur hennar hækk­uðu um 8,8 pró­sent milli ára.

Sam­tals fékk Lilja því 54,4 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóðs á síð­asta ári, eða rúm­lega 4,5 millj­ónir króna á mán­uði.

Auglýsing
Helga Björg Eiríks­dótt­ir, for­maður banka­ráðs bank­ans fékk alls 11,7 millj­ónir króna í laun og hlunn­indi í fyrra og 1,5 millj­ónir króna í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð. Sam­tals námu greiðslur til hennar því 15,7 millj­ónum króna en þær voru alls 13,2 millj­ónir króna á árinu 2020. Greiðslur til for­manns banka­ráðs hækk­uðu því 19 pró­sent milli ára og voru 1,3 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Lands­bank­ans vegna árs­ins 2021 sem birtur var í dag.

Lilja var með tæp­­lega 2,1 milljón króna í laun á mán­uði þegar hún var ráðin í banka­stjóra­starf­ið, en hún hóf störf 15. mars 2017.

­Laun hennar voru skömmu síð­­­ar, eða um mitt ár 2017, hækkuð í 3,25 millj­­ónir króna og á árinu 2018 upp í 3,8 millj­­ónir króna. Laun Lilju höfðu því hækkað um 82 pró­­sent.

Laun Lilju Bjarkar voru um 3,6 millj­­ónir króna að með­­al­tali á mán­uði árið 2019 og 2020 en hækk­uðu, líkt og áður sagði, í fyrra upp í um 3,8 millj­ónir króna.

Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, hagn­að­ist um 28,9 millj­arða króna á síð­asta ári. Það er 18,4 millj­örðum krónum meiri hagn­aður en bank­inn skil­aði á árin 2020. Því jókst hagn­að­ur­inn um 175 pró­sent milli ára.

Vegna þessa árang­urs mun banka­ráð Lands­bank­ans leggja til við aðal­fund að greiddur verði út 14,4 millj­arðar króna í arð vegna árs­ins 2021. Verði þessi til­laga sam­þykkt munu arð­greiðslur bank­ans á árunum 2013-2022 sam­tals nema um 160,6 millj­örðum króna. Banka­ráð er jafn­framt með til skoð­unar að leggja til að greiddur verði út sér­stakur arður á árinu 2022. Ekki er til­greint hversu há sú greiðsla gæti orð­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent