Bankasýslumenn ekki orðnir afhuga tilboðsfyrirkomulaginu

Forsvarsmenn Bankasýslunnar sátu fyrir svörum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun og voru þar spurðir hvort þeir myndu mæla með tilboðsfyrirkomulagi í framtíðar bankasölum ríkisins.

Forsvarsmenn Bankasýslunnar á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun, ásamt tveimur lögfræðingum frá Logos.
Forsvarsmenn Bankasýslunnar á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun, ásamt tveimur lögfræðingum frá Logos.
Auglýsing

Jón Gunnar Jóns­son for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins sagði á fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun að í hans huga væri seinna útboð rík­is­ins á hlutum í Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum „far­sælasta hluta­fjár­út­boð Íslands­sög­unn­ar“.

„Við getum aldrei litið fram­hjá því þegar við ákveðum næstu sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins,“ sagði for­stjór­inn, í kjöl­far þess að Orri Páll Jóhanns­son þing­maður Vinstri grænna hafði spurt hann og Lárus Blön­dal stjórn­ar­for­mann Banka­sýsl­unnar hvort að þeir myndu mæla með því, eftir þá gagn­rýni sem fram hefur kom­ið, að ríkið not­að­ist aftur við til­boðs­fyr­ir­komu­lag við sölu á frek­ari eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka eða öðrum fjár­mála­stofn­unum í fram­tíð­inni.

Lárus sagði í svari sínu að í aðdrag­anda útboðs­ins hefði verið fjallað um ýmsar sölu­að­ferðir og gerð grein fyrir þeim og til­boðs­fyr­ir­komu­lag­inu, og því að sú aðferð væri ekki galla­laus. Þetta væri hins vegar lang­vin­sælasta sölu­að­ferð­in, og hefði verið mikið notuð af rík­is­sjóð­um, eins og oft hefði komið fram.

„Í sjálfu sér snýst þetta ekki um það að þessi aðferð sé ótæk. Hún hefur ákveðna kosti, mikla kosti, hún t.d. gerði það að verkum að við gátum boðið þetta út. Við hefðum ekki getað farið út í almennt útboð sem hefði tekið marga daga miðað við þá áhættu sem hefði þá skap­ast á mark­aðnum miðað við að það er stríð í miðri Evr­ópu og allt annað sem er að ger­ast í efna­hags­málum heims­ins. Ég tel að þetta hafi verið eini val­kost­ur­inn á þessum tíma­punkt­i,“ sagði Lár­us.

Hann sagði að ef taka ætti ákvörðun um nýtt útboð þá verði að horfa til þess hvað megi læra af þessu og hvaða gallar voru við útboðið í mars og hvort þeir hafi verið það stórir að menn vilji ekki fara þessa leið. Hann sagði að það væru einnig stórir og miklir van­kantar á því að fara í almennt útboð, sér­stak­lega þegar tímar væru eins óvissir og þeir eru núna, en að þetta væri bara „sam­an­burð­ar­fræð­i“. Horfa þyrfti til þess hvaða árangri menn vildu ná.

Breska ríkið hafi tví­vegis þurft að stíga frá almennu útboði

Jón Gunnar bætti því við að í minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar í jan­úar hefðu verið reif­aðar fjórar aðferðir við sölu, auk almenns útboðs og til­boðs­fyr­ir­komu­lags­ins hafi verið fjallað um svo­kall­aða miðl­un­ar­á­ætlun þar sem bréf væru seld í smá skömmt­um, sem ætti betur við ef ríkið ætti orðið undir 20 pró­sent í bank­an­um, og svo útgáfu skipt­an­legra skulda­bréfa.

Auglýsing

„Þetta eru nákvæm­lega þær sömu aðferðir og t.d. syst­ur­stofnun okkar í Bret­landi, UKFI, mat á sínum tíma þegar breska ríkið var að selja hlut í Lloyd’s bank­an­um. Þeir þurftu tvisvar að hverfa frá útboði frá almenn­ings út af mark­aðs­að­stæð­um. Þannig að kostir þessa fyr­ir­komu­lag eru gríð­ar­lega miklir sér­stak­lega vegna þess að með þessum hætti náum við hæsta verði og lág­marka verð­mæt­in­u,“ sagði Jón Gunn­ar.

Hann bætti því við að hann teldi að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefði gert nefnd­inni grein fyrir þessu með skýrum hætti er hann kom fyrir nefnd­ina nýlega, að það gæti verið fórn­ar­kostn­aður fal­inn í því að tryggja mis­mun­andi þætti í útboði, eins og hæsta verð eða gagn­sæi.

Í máli Bjarna á þeim fundi kom fram að hann teldi úti­lokað að sú rík­is­stjórn sem nú situr myndi not­ast við til­boðs­fyr­ir­komu­lagið við frek­ari sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í bank­an­um, vegna galla sem því fylgi, „ekki síst í svona smáu sam­­fé­lagi eins og við búum í“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent