Bann við að setja tilteknar, algengar einnota vörur úr plasti á markað tekur gildi í dag. Meðal vara sem bannað er að setja á markað eru einnota bómullarpinnar úr plasti, plasthnífapör og -diskar, sogrör, hræripinnar og blöðrustangir. Matarílát, drykkjarílát, glös og bollar úr frauðplasti eru einnig óheimil. Undantekningar eru gerðar ef vörur flokkast sem lækningatæki.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Bannið byggir á breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sem Alþingi samþykkti árið 2020 og miðar að því að draga úr notkun óþarfa plasts í samfélaginu.
Gjaldið verður að vera sýnilegt á kassakvittun
Þá er ekki heimilt að afhenda án endurgjalds einnota bolla, glös og matarílát úr plasti til dæmis þegar matur og drykkur er seldur til að taka með og skal gjaldið vera sýnilegt á kassakvittun.
Fram kemur hjá Stjórnarráðinu að á markaði séu fáanlegar staðgönguvörur sem eru margnota eða innihalda ekki plast og nota megi í stað þeirra vara sem breytingarnar taka til. „Þá hafa verslanir staðið sig vel í að hætta að bjóða upp á einnota plastpoka á afgreiðslusvæðum (kassasvæði) í samræmi við plastpokabannið. Mikilvægt er að dregið verði enn frekar úr notkun á einnota burðarpokum úr öðrum efnum, svo sem pappír, og ráðuneytið mun í haust halda áfram vinnu með versluninni og Umhverfisstofnun við að innleiða margnota lausnir.“
Stjórnvöld gáfu út síðastliðið haust aðgerðaáætlun í plastmálum, Úr viðjum plastsins, þar sem settar eru fram 18 aðgerðir til þess að draga úr plastnotkun, auka endurvinnslu þess og sporna gegn plastmengun í hafinu. Þær breytingar sem nú taka gildi eru hluti af þessari áætlun, að því er fram kemur hjá Stjórnarráðinu.