Skorar á stjórnmálaflokkana að tryggja að á Íslandi fái þrifist óháðir fjölmiðlar

BÍ hvetur stjórnmálaflokka til að setja sér stefnu um hlutfall auglýsingafjármagns sem veitt er til erlendra miðla og að birta að kosningum loknum sundurliðun á því hve miklu fjármagni var varið til erlendra miðla annars vegar og íslenskra hins vegar.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ.
Auglýsing

Blaða­manna­fé­lag Íslands (BÍ) hefur sent áskorun til stjórn­mála­flokk­ana um að gera það að stefnu­máli sínu að tryggja að á Íslandi fái þrif­ist frjáls­ir, sjálf­stæðir og óháðir fjöl­miðl­ar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Auk þess skorar Blaða­manna­fé­lagið á stjórn­mála­flokka að hafa í huga sam­fé­lags­lega ábyrgð sína og mik­il­vægi fjöl­miðla fyrir lýð­ræð­is­lega umræðu í sam­fé­lag­inu þegar ákvörðun er tekin um birt­ingu aug­lýs­inga.

BÍ hvetur stjórn­mála­flokka til að setja sér stefnu, sem birt er opin­ber­lega, um hlut­fall aug­lýs­inga­fjár­magns sem veitt er til erlendra miðla, og jafn­framt að birta að kosn­ingum loknum sund­ur­liðun á því hve miklu fjár­magni var varið til erlendra miðla ann­ars vegar og íslenskra hins veg­ar.

Auglýsing

Staða fjöl­miðla ekki einka­mál fjöl­miðl­anna sjálfra

„Fjöl­miðlar eru grund­völlur lýð­ræð­is­legrar umræðu og lýð­ræð­is­legra sam­fé­laga, um það er ekki deilt. Það er einnig óum­deilt að rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hefur versnað mikið á und­an­förnum árum. Ástæðan er fyrst og fremst stór­felldar breyt­ingar á fjöl­miðla­mark­aði með til­komu erlendra efn­isveitna, sam­fé­lags­miðla og tæknirisa á borð við Face­book og Google sem soga til sín æ stærri hluta af aug­lýs­inga­fé. Þá hefur sú þróun orðið að færri eru til­búnir til að greiða fyrir fréttir eða frétta­tengt efni vegna þess mikla fram­boðs sem er af fríu frétta­efni á net­inu.

Staða fjöl­miðla er ekki einka­mál fjöl­miðl­anna sjálfra heldur varðar hún sam­fé­lagið allt. Sterkir, öfl­ugir fjöl­miðlar eru for­sendur þess að hægt sé að veita stjórn­völdum og stór­fyr­ir­tækjum nauð­syn­legt aðhald. Það ætti að vera mark­mið hvers lýð­ræð­is­sam­fé­lags, hverrar rík­is­stjórn­ar, hvers lög­gjaf­ar­þings, að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja öfl­uga, frjálsa og sjálf­stæða fjöl­miðla­starf­semi í land­inu. Því skorar Blaða­manna­fé­lag Íslands á þá flokka sem bjóða fram í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum að taka upp til­lögur að nauð­syn­legum breyt­ingum sem félagið telur stuðla að því að for­sendur fyrir rekstri fjöl­miðla gjör­breyt­ist,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

BÍ kemur með átta til­lögur til efl­ingar rekstr­ar­um­hverfis íslenskra fjöl­miðla sem finna má hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent