Í ljósi úrskurðs Héraðsdóms Reykjavíkur í dag, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að lagastoð skorti fyrir því að skylda alla farþega sem koma frá háhættusvæðum í sóttkví á sóttkvíarhólteli, verður þeim sem úrskurðurinn nær til gerð grein fyrir því að þeim sé frjálst að ljúka sóttkví annars staðar, hafi þeir viðundandi aðstöðu til þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og heilbrigðisráðuneytinu.
Þar segir enn fremur að sóttvarnayfirvöld biðli „til gesta um að ljúka sóttkví á sóttkvíarhótelinu, enda er það besta leiðin til að draga úr útbreiðslu Covid 19-sjúkdómsins.“
Verið er að fara yfir úrskurðinn í heilbrigðisráðuneytinu og hjá embætti sóttvarnarlæknis. „Í framhaldinu mun heilbrigðisráðherra, í samráði við sóttvarnalækni, skoða hvaða leið verður farin til að lágmarka áhættu á að smit berist inn í landið. Greint verður frá viðbrögðum á næstum dögum.“
Samkvæmt fréttinni voru kærurnar lagðar fram á þeim grundvelli að um ólöglega frelsissviptingu væri að ræða. Samkvæmt Ómari Valdimarssyni, lögmanni sem rak eitt málanna, er reglugerð stjórnvalda um skyldudvöl komufarþega frá áhættusvæðum á sóttvarnarhúsum ónýt.
Ómar sagði þó að úrskurðirnir sem kveðnir voru upp fyrr í dag séu bundnir við þá einstaklinga sem sóttu málin og gildi ekki endilega fyrir alla.
Kjarninn hefur áður fjallað um málið, en alls lögðu fimm fram kæru til ríkisins vegna skyldudvalarinnar. Allir eiga þeir heimili hér á landi. Ómar, ásamt Jóni Magnússyni, öðrum lögmanni kæranda, hafa sagt að málin gætu haft fordæmisgildi fyrir aðra sem dvelja í sóttvarnarhúsi. Í viðtali við RÚV fyrr í dag ítrekaði Ómar að þetta kunni að hafa fordæmisgildi fyrir aðra, en vildi þó ekki fullyrða það með óyggjandi hætti.