Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður, býður sig fram í 2. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni í dag en hann segist stefna á að verða í framvarðasveit flokksins í Reykjavík. „Hugmyndir mínar og grundvallarafstaða til þess hvernig þjóðfélagið á að þróast fara mjög vel saman við stefnu Sjálfstæðisflokksins Bjargföst er trú mín á einstaklinginn, dugnað hans, áræðni og sköpunarkraft. Við þurfum að skapa umhverfi til að atvinnulífið getið notið kraftsins sem býr í einstaklingnum og þannig skapað velferð sem allir njóti,“ skrifar hann.
Þá telur Brynjar að Sjálfstæðisflokkurinn eigi sóknarfæri í komandi kosningum. „Við sjálfstæðismenn verðum að tala fyrir stefnunni sem byggist á okkar pólitísku sýn og forðast að festast í dægurumræðu og skyndilausnum. Tölum skýrt, komum hreint fram og sýnum kjark og þor.“
Skorar hann að endingu á fólk sem vill hafa áhrif á uppstillingu á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík að taka þátt í prófkjörinu. „Einnig vil ég skora á sem flesta að bjóða sig fram. Margir öflugir frambjóðendur og góð þátttaka mun styrkja flokkinn fyrir komandi kosningar í haust.“
Ég vil segja ykkur það fyrst, kæru fésbókarvinir, að ég býð mig fram í 2. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í...
Posted by Brynjar Níelsson on Saturday, May 8, 2021