Bjarni Ben: Engin ákvörðun verið tekin um útgönguskatt

15084010837_5e69fc5c02_z.jpg
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um útgöngu­skatt á erlenda kröfu­hafa sem vilja fara með eignir sínar úr landi. „Þaðan af síð­ur­ hef ég boðað ein­hverja til­tekna pró­sentu, sem menn eru farnir að vísa til,“ sagði Bjarni á þingi fyrir skemmstu.

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, spurð­i ­Bjarna um grein fjög­urra InDefence manna í Kjarn­anum í gær, þar sem þeir viðr­uðu hug­myndir um 60 pró­senta útgöngu­skatt á kröfu­hafa sem vilja fara með eignir sínar frá Íslandi.

Katrín spurði Bjarna einnig um afstöðu hans til þess að áætlun um losun hafta sé leyni­leg, eins og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði síð­ast á mánu­dag að væri nauð­syn­legt. Katrín spurði hvort það væri ekki einmitt mik­il­vægt að almenn­ingur í land­inu sé upp­lýstur um losun hafta, vegna þess að málið geti haft mjög mikil áhrif á almenn­ing.

Auglýsing

Bjarni að menn yrðu „að fara var­lega í að úttala sig um allar sínar hugs­anir og val­kosti sem eru til stað­ar.“ Það þjóni ekki hags­munum Íslands að opin­bera alla mögu­lega sem séu til skoð­unar sam­stund­is. Þá sé ekki hægt að hafa mjög opin­skáa umræðu meðal ann­ars vegna þess að „sér­hvert orð í þeirri umræðu getur til dæmis haft áhrif á mark­að­ina.“ Hann sagð­ist hins vegar fylgj­andi því að pen­inga­mála­stjórn og það sem við­kemur því að tryggja stöð­ug­leika eigi að vera í opin­berri umræðu.

„Ég tek undir með hátt­virtum þing­manni þegar kemur að því að við þurfum að kynna öll skref sem við hyggj­umst taka mjög ræki­lega en við getum ekki gert það fyrr en það hefur verið tekin ákvörðun um hvað við ætlum nákvæm­lega að ger­a.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None