Bjarni Ben gagnrýnir könnun MMR um persónueiginleika stjórnmálaleiðtoga

bjarni.jpg
Auglýsing

„Ég hef unnið með þeim öllum og þekki mörg hver orðið býsna vel. Þess vegna veit ég af eigin raun að þau geta unnið undir álagi, þau virða skoð­anir ann­arra og þau eru heið­ar­legt fólk sem maður getur treyst,“ segir Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra um aðra stjórn­mála­leið­toga lands­ins, í til­efni af skoð­ana­könnun MMR á per­sónu­eig­in­leikum stjórn­mála­leið­toga lands­ins.

Bjarni skrifar um könn­un­ina á Face­book í kvöld þar sem hann spyr hvort hægt sé að mæla heið­ar­leika fólks með skoð­ana­könn­un. Hann segir könn­un­ina til­valda til að aug­lýsa MMR og til þess sé leik­ur­inn vænt­an­lega gerð­ur. „En um leið spyr maður sig hvort eng­inn telji þörf á að beita gagn­rýn­inni hugsun þegar svona lagað er birt. Erum við virki­lega í svo slæmum málum að það sé óþarfi að efast þegar „stjórn­mála­stétt­in“ fær fall­ein­kunn?“

„Þar sem það er ekk­ert offram­boð á fólki til að taka upp hansk­ann fyrir stjórn­mála­menn ætla ég að gera það sjálf­ur,“ segir Bjarni.

Auglýsing

Hann segir margar spurn­ingar vakna við lestur könn­un­ar­inn­ar. „Ein þeirra er: Hvernig er hægt að halda því fram að ein­stak­lingar sem hafa sjálfir stofnað stjórn­mála­flokk og hlotið kosn­ingu á þing ásamt fjölda þing­manna séu ekki leið­tog­ar, hvort sem þeir hafi fæðst sem slíkir eða ekki. Og hvað er átt við með þeirri spurn­ingu - að vera fæddur leið­togi? Hvernig fer sú mæl­ing fram og hvenær, nákvæm­lega?

En það er kannski ekki nema von að ég átti mig ekki á þessu öllu sam­an, enda eru víst 95% sem telja að ég sé ekki í neinum tengslum við almenn­ing,“ skrifar Bjarni.





Er hægt að mæla heið­ar­leika fólks með skoð­ana­könn­un? Meiri­hluti þátt­tak­enda í skoð­ana­könnun MMR sem birt var í gær...

Posted by Bjarni Bene­dikts­son on Wed­nes­day, April 29, 2015





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None