Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vill að gerðar verði breytingar á þingsköpum Alþingis til þess að „gera starf þingsins skilvirkara og auka afköst.“ Hann vill að þingið hugleiði að auka völd forseta til að stjórna þingstörfum og mál fái ákveðinn takmarkaðan tíma til umræðu. Hann vill einnig að mál sem ekki er lokið á einu þingi lifi áfram á næsta þingi innan kjörtímabils.
Bjarni gerir þetta að umtalsefni á Facebook-síðu sinni í dag og segist eftir áratugsstarf á Alþingi vera sannfærður um að gera þurfi verulegar umbætur.
„Við þurfum að horfast í augu við að núgildandi reglur bjóða heim hættunni á að þegar ágreiningur ríkir um mál leysist þingið upp í opinn vettvang fyrir rifrildi sem engu skilar fyrir samfélagið. Það leiðir aftur til þess að dregur úr virðingu fyrir þingstörfunum,“ segir Bjarni. „Menn mala fram á nótt, taka marga þingdaga í að ræða tiltölulega einföld mál til að styrkja stöðu sína þegar dregur nær þinglokum. Við erum í þessum sporun í dag. Einu sinni enn.“
Bjarni segist ekki vera að saka stjórnarandstöðuna um að gera nokkuð annað en hann hefði mögulega gert sjálfur í stjórnarandstöðu við sömu aðstæður. Þetta gangi hins vegar ekki lengur.
„Með þessum breytingum myndum við færa þingstörfin nær því sem gerist víðast í kringum okkur. Það er ekkert eðlilegt við fyrirkomulag sem hefur hvata til að tefja og draga afgreiðslu allra mála þannig að semja þurfi að vori um þau mál sem ,,má" greiða atkvæði um. Önnur falli niður.“ Bjarni segir að nú sé lag að breyta reglum þingsins og láta breytingarnar gilda langt fram í tímann.
Eftir rúman áratug á Alþingi er ég orðinn sannfærður um að það þarf að gera verulegar umbætur á þingsköpum í þeim...Posted by Bjarni Benediktsson on Friday, May 15, 2015