Björgvin Páll hættur við að sækjast eftir því að leiða lista Framsóknar í Reykjavík

Landsliðsmarkvörður í handbolta ætlaði að sækjast eftir því að leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann er nú hættur við og segir að „á leiðinni á útivöll þá þarf maður að hafa allt liðið á bakvið sig“.

Björgvin Páll Gústavsson er best þekktur sem handboltamarkvörður, en hann hefur einnig beitt sér í málefnum barna með ADHD í skólakerfinu á undanförnum árum.
Björgvin Páll Gústavsson er best þekktur sem handboltamarkvörður, en hann hefur einnig beitt sér í málefnum barna með ADHD í skólakerfinu á undanförnum árum.
Auglýsing

Björg­vin Páll Gúst­afs­son, lands­liðs­mark­vörður í hand­bolta, er hættur við að sækj­ast eftir sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. 

Í stöðu­upp­færslu á Face­book seg­ist hann ein­fald­lega hafa skipt um skoð­un. „Þrátt fyrir að stuðn­ing­ur­inn sé mik­ill innan úr flokkn­um, þá er mik­il­vægt að hafa það í huga að þegar maður er á leið­inni á úti­völl þá þarf maður að hafa allt liðið á bak­við sig. Með þess­ari ákvörðun vil ég hjálpa þeim sem mun leiða flokk­inn í sinni vinnu. Þetta hefur verið sturl­aður til­finn­inga­rús­sí­bani sem að hefur styrkt vilja minn til þess að setja börnin í 1. sæti enn frek­ar. Ég styrk­ist einnig í þeirri trú minni að það sé minn til­gangur að vera fyr­ir­mynd og hjálpa öllum að líða bet­ur. Ég mun á næstu dögum setja ork­una í vera fyrir boltum og hjálpa börn­unum mínum að líða vel.“

Auglýsing
Björgvin Páll greindi frá því í stöðu­upp­færslu á Face­book snemma í febr­úar að hann myndi sækj­ast eftir 1.-2. sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins mun stilla upp lista fyrir kom­andi kosn­ing­ar. Hann nefndi það sér­stak­lega að hann vildi taka taka ábyrgð á því að gæta vel­­ferðar barna og ann­­arra við­­kvæmra hópa í sam­­fé­lag­inu.

Ég hef skipt um skoð­un… og ákveðið sækj­ast ekki eftir sæti á lista hjá Fram­sókn í Reykja­vík fyrir kom­and­i...

Posted by Björg­vin Páll Gúst­avs­son on Tues­day, March 1, 2022

Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn reið ekki feitum hesti frá síð­­­ustu borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­um. Hann fékk ein­ungis 3,2 pró­­­sent atkvæða og náði ekki inn manni í Reykja­vík. 

Nokkrum dögum eftir að Björg­vin Páll birti færslu sína sagði Einar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi frétta­maður og stjórn­andi Kast­ljóss á RÚV, að hann hefði fengið fjölda­margar hvatn­ingar til að fara fram fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Reykja­vík og að hann væri að íhuga það alvar­lega. 

Einar hefur ekki starfað innan Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins áður en eig­in­­kona hans, Milla Ósk Magn­ús­dótt­ir, er aðstoð­­ar­­maður Will­ums Þórs Þór­s­­sonar heil­brigð­is­ráð­herra og þing­­manns Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins. Einar var for­­maður félags ungra sjálf­­stæð­is­­manna í Kópa­vogi á árum áður og var sterk­­lega orð­aður við fram­­boð fyrir þann flokk í Kópa­vogi fyrir skemmstu. Einar og Milla settu hins vegar heim­ili sitt í Kópa­vogi á sölu nokkrum dögum fyrir yfir­lýs­ing­una og boð­uðu flutn­inga í Selja­hverfið í Reykja­vík. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent