Björgvin Páll Gústavsson handboltamarkvörður hefur staðfest að hann sækist eftir 1.-2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Flokkurinn, sem á engan borgarfulltrúa í dag, kemur til með að stilla upp á lista fyrir komandi kosningar í borginni.
Björgvin Páll segir í færslu á Facebook í dag að honum langi að taka ábyrgð á því að gæta velferðar barna og annarra viðkvæmra hópa í samfélaginu.
„Börn eru ekki með kosningarétt og þeim sem stjórna er falið mjög mikilvægt hlutverk sem snýr að velferð barna. Það má gera betur þegar kemur að því að forgangsraða réttindum og velferð barna með sýnilegri stefnumótun og ákvörðunartöku. Það er kominn tími á að við jöfnum leikinn og að allir fái jöfn tækifæri. Íþróttirnar björguðu mér og er það minn draumur að heyra fleiri og fleiri börn segja að skólinn hafi bjargað þeim. Með þeirri ákvörðun að fara í framboð er ég að fylgja hjartanu og minni ástríðu,“ segir í færslu Björgvins Páls í dag.
Það vakti mikla athygli í síðustu viku er Björgvin Páll greindi frá því að hann hefði verið hvattur í framboð og væri að máta sig borgarstjórastjólinn.
Í færslu sinni í dag segist Björgvin Páll hafa notast við orðið „borgarstjóraefni“ til þess að gera fólki grein fyrir þeirri trú sem hann hafi á Framsókn fyrir komandi kosningar í borginni.
Segist hann vilja „vera hluti af þeirri vegferð, hvort sem það væri að leiða flokkinn eða í öðru sæti á lista. Ég tel að í hvoru sætinu sem er geti ég orðið sá leiðtogi innan kerfisins sem að ég tel að borgin og börnin þurfi á að halda. Börnin okkar eiga að fá hásætið næstu 4 árin og við þurfum öll að taka þátt í að hlúa að þeim,“ skrifar Björgvin Páll.
Ég ætla að taka slaginn og hef formlega sóst eftir 1.-2. sæti hjá Framsókn í Reykjavík. Mig langar að taka ábyrgð á því...
Posted by Björgvin Páll Gústavsson on Monday, February 7, 2022