Flugleiðahótel vilja geta sótt um nífaldan veirustyrk fyrir veitingamenn

Ein stærsta hótelkeðja landsins biðlar nú til Alþingis um að fá að sækja um styrki, sem hugsaðir eru fyrir smærri fyrirtæki í veitingabransanum, vegna hvers og eins þeirra níu veitingastaða sem hótelkeðjan rekur.

Icelandair Hótel reka níu hótel um landið og eru með tæplega 200 starfsmenn í veitingaþjónustu sinni.
Icelandair Hótel reka níu hótel um landið og eru með tæplega 200 starfsmenn í veitingaþjónustu sinni.
Auglýsing

Hót­el­keðjan Flug­leiða­hótel (Icelandair Hót­el), sem rekur níu heils­árs­hótel með jafn mörgum veit­inga­stöð­um, hefur lagt til að Alþingi geri þá breyt­ingu á frum­varpi um styrki til rekstr­ar­að­ila veit­inga­staða sem hafa sætt tak­mörk­unum á opn­un­ar­tíma að rekstr­ar­að­ilar sem reki marga veit­inga­staði á sömu kenni­töl­unni geti sótt um þessa nýj­ustu veiru­styrki rík­is­ins fyrir hvern og einn veit­inga­stað sem er með útgefið rekstr­ar­leyfi.

Þetta kemur fram í umsögn hót­el­keðj­unnar um frum­varp­ið, sem send var inn til Alþingis fyrir helgi. Í umsögn­inni segir einnig að frum­varp­ið, sem lagt var fram af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þann 18. jan­úar síð­ast­lið­inn, taki „ekki til­lit til þeirra aðila sem eru með fleiri en einn veit­inga­stað í rekstri undir sömu kenni­tölu“ og að stjórn­endur Flug­leiða­hót­ela telji það „skjóta skökku við að ekki sé hægt að sækja um styrk fyrir hvert útgefið rekstr­ar­leyfi í stað styrks á hverja kenni­tölu.“

Frum­varpið felur í sér að rekstr­ar­að­ilar í veit­inga­geir­anum geti fengið styrki vegna tekju­falls á síð­ustu mán­uðum síð­asta árs og þeim fyrstu á þessu ári, allt að þremur millj­ónum króna á mán­uði á hvern rekstr­ar­að­ila.

Auglýsing

Stuðn­ings­úr­ræði hugsað til að halda smáum rekstr­ar­að­ilum á floti

Icelandair Hótel eru ekki fyrsti aðil­inn til að vekja máls á því að þetta veiru­úr­ræði stjórn­valda gagn­ist minni rekstr­ar­að­ilum betur en þeim sem stærri eru. Við­skipta­ráð Íslands benti til dæmis á það í umsögn sinni að stærri rekstr­ar­að­ilar gætu ekki fengið rekstr­ar­styrk í sam­bæri­legu hlut­falli við tap vegna tak­mark­ana á starf­semi þeirra og þeir minni, eins og frum­varpið væri skrif­að.

Sam­kvæmt minn­is­blaði frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem sent var til efna­hags- og við­skipta­nefndar þann 27. jan­úar er þó ljóst að það er með ráðum gert, en ráðu­neytið bendir á að fjár­hæð­ar­mörkum í frum­varp­inu sé einmitt ætlað að beina stuðn­ingi rík­is­ins frekar til smærri en stærri rekstr­ar­að­ila.

Ráðu­neytið benti á að þrír af hverjum fjórum launa­greið­endum á Íslandi væru með fjóra launa­menn eða færri og hlut­fallið væri hærra ef miðað væri við stöðu­gildi, því um fimmt­ungur launa­manna væri ekki í fullu starfi. Það hlut­fall væri svo enn hærra í veit­inga­rekstri – og vís­aði ráðu­neytið til nýlegrar skýrslu KPMG þar sem fram kom að 79 pró­sent starfs­manna veit­inga­húsa væru í hluta­starfi.

Stór fyr­ir­tæki hafi kost á banka­lánum öfugt við þau minni

„Ráðu­neytið telur því að með því að miða hámark styrks við fimm stöðu­gildi nýt­ist úrræðið vel meiri­hluta fyr­ir­tækja í veit­inga­rekstri,“ segir í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins.

Þar segir einnig að meiri þörf sé á því að styðja við minni rekstr­ar­að­ila en þá stærri, þar sem þeir hafi síður en stærri rekstr­ar­að­ilar aðgang að annarri fyr­ir­greiðslu til að mæta lausa­fjár­vanda, eins og til dæmis banka­lán­um.

Frum­varpið um styrki til rekstr­ar­að­ila veit­inga­staða sem hafa sætt tak­mörk­unum á opn­un­ar­tíma bíður þess að verða tekið til 3. umræðu á þingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent