Björn Þorfinnsson ráðinn ritstjóri DV

Blaðamaðurinn Björn Þorfinnson hefur tekið við starfi ritstjóra DV. Tobba Marinós lét nýverið af störfum sem ritstjóri miðilsins, sem er hættur að koma út á pappír.

DV hefur ráðið nýjan ritstjóra til starfa.
DV hefur ráðið nýjan ritstjóra til starfa.
Auglýsing

Blaða­mað­ur­inn og skák­mað­ur­inn Björn Þor­finns­son hefur verið ráð­inn nýr rit­stjóri DV, en frá þessu er greint í frétt mið­ils­ins í dag. Hann tekur við starf­inu af Tobbu Mar­in­ós­dótt­ur, sem til­kynnti í mars­mán­uði að hún ætl­aði að hverfa til ann­arra starfa.

Björn Þorfinnsson er nýr ritstjóri DV.

Björn var síð­ast blaða­maður á Frétta­blað­inu, en lauk störfum þar fyrr á þessu ári. Áður hafði hann verið blaða­maður á DV frá árinu 2015 og gegnt stöðu frétta­stjóra hjá miðl­in­um. Hann hefur sömu­leiðis verið for­seti Skák­sam­bands Íslands.

„Ég ólst upp sem blaða­maður á DV og þykir afar vænt um þennan mið­il. Ég er því afar spenntur að fá tæki­færi til að móta stefnu og ásýnd DV til fram­tíðar og vinna með því öfl­uga fólki sem starfar á miðl­inum í dag,“ er haft eftir Birni í frétt DV um ráðn­ing­una.

„Það er mik­ill akkur fyrir DV að fá Björn Þor­finns­son til starfa. Það er einnig ánægju­legt að hann skuli aftur vera geng­inn í raðir starfs­manna Torgs. Með ráðn­ingu hans mun DV halda áfram að sækja fram, hvoru tveggja sem frétta- og afþrey­ing­ar­mið­ill“, er haft eftir Birni Víglunds­syni for­stjóra Torgs, í frétt mið­ils­ins.

Auglýsing

Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem þá var útgáfu­fé­lag DV, var sam­einað Torgi, eig­anda Frétta­blaðs­ins og Hring­brautar í mars árið 2020. Mið­ill­inn er hættur að koma út á prenti, hið minnsta tíma­bund­ið.

Vef­mið­ill­inn dv.is er sá þriðji mest lesni hér á landi og eru það ein­ungis Vísir og mbl.is sem standa honum framar er kemur að fjölda dag­legra not­enda, sam­kvæmt vef­mæl­ingum Gallup.

„Að­sóknin á dv.is er gríð­ar­leg og því er um að ræða ótrú­lega sterkan vett­vang til þess að koma á fram­færi fréttum og sögum fólks sem eiga erindi við sam­fé­lagið og hrista jafn­vel upp í því. Mitt helsta mark­mið að freista þess að styrkja frétta­hluta mið­ils­ins enn frekar og bjóða les­endum upp á góða blöndu af fréttum og afþrey­ing­ar­efn­i,“ er haft eftir nýja rit­stjór­anum í frétt DV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent