Vottorð um bólusetningu gegn COVID-19 og vottorð um fyrri sýkingu verða tekin gild á landamæri Íslands, óháð því hvort þau koma frá löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eða ekki. Þetta kemur fram í nýrri fréttatilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Samkvæmt tilkynningunni þurfa einstaklingar sem framvísa vottorð um bólusetningu eða fyrri sýkingu, sem uppfylla kröfur sóttvarnarlæknis, hvorki að fara í sýnatöku eða sóttkví né framvísa vottorði um neikvætt PCR-próf á landamærunum.
Hingað til hafa bólusetingarvottorð, sem gefin hafa verið út í ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins með einhverju þeirra bóluefna sem hlotið hafa markaðsleyfi Evrópu, verið tekin gild á landamærum Íslands. Einnig hafa skírteini á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) verið tekin gild, að því gefnu að WHO hafi fjallað um og viðurkennt bóluefnið sem skráð er í skírteinið. Sömuleiðis hafa vottorð um afstaðna COVID-19 sýkingu sem uppfylla skilyrði sóttvarnarlæknis verið tekin gild.
Heilbrigðisráðuneytið segir að ákvörðun ráðherra um að taka gild öll vottorð sem uppfylla sömu kröfur, óháð uppruna, gerir þeim sem bólusettir hafa verið í Bandaríkjunum og Bretlandi kleift að framvísa vottorði sem undanþiggur þá frá aðgerðum á landamærunum.