Borgaryfirvöld þurfi að læra á göngugötur ekki síður en íbúar

Borgarfulltrúi Samfylkingar og fulltrúi í umhverfis- og skipulagsráði segist ætla láta skoða hvað sé hægt að gera í aðgengismálum íbúa við göngugötur. Hann var nýlega gagnrýndur í aðsendri grein fyrir að segja að fólk þyrfti „bara að læra á“ göngugötur.

Hjálmar Sveinsson og göngugata
Auglýsing

Borg­ar­yf­ir­völd þurfa jafnt sem íbúar að læra inn á göngu­götur enda geta álita­mál vegna þeirra reglu­lega komið upp. Þetta segir Hjálmar Sveins­son, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar og full­trúi um umhverf­is- og skipu­lags­ráði Reykja­vík­ur. Kjarn­inn leit­aði við­bragða Hjálm­ars við aðsendri grein sem nýlega var birt í Kjarn­anum og ber heitið Lærðu á þetta.

Í grein­inni segir Guð­rún Pét­urs­dóttir frá vin­konu sinni sem á erfitt með gang og býr við götu í Reykja­vík sem nýlega var gerð að göngu­götu. Konan reiðir sig því á vini og ætt­ingja til að ferja sig á milli staða en Guð­rún gagn­rýnir í grein­inni að aðstand­endur kon­unnar geti ekki með góðu móti kom­ist að húsi hennar á bíl. „Það verður að vera hægt að sækja sjúk­ling sem á heima við göngu­götu. Ef það gengur ekki verðum við að kalla til sjúkra­bíl í hvert sinn sem vin­kona mín þarf að fara milli staða,“ ritar Guð­rún meðal ann­ars í grein­inni.

Auglýsing

„Læra hvað, Hjálm­­ar?“

Guð­rún gerir útvarps­þátt­inn Flakk með Lísu Páls­dóttur að umtals­efni í grein sinni og vitnar til orða Hjálm­ars sem hann lét falla í þætt­inum þegar göngu­götur bar á góma. Guð­rún rit­ar: „Þess vegna hjó ég í við­brögð Hjálm­­ars við athuga­­semd Lísu, um að það kunni að koma íbúum illa að bannað sé að aka um göng­u­­götur og þungar sektir liggi við því að aka eða leggja í göng­u­­götu. Hvað ef það vantar pípara með þungan bún­­að, sem hann getur ekki borið langa leið? Hvað með ömmu gömlu sem á að bjóða í mat, en getur ekki gengið spöl­inn að bíln­um? Leig­u­bílar fást ekki til að aka inn í göng­u­­göt­­ur, því þeir eiga háar sektir yfir höfði sér. Þetta hlýtur að vera íþyngj­andi fyrir íbú­ana, sagði Lísa. Hjálmar Sveins­­son hafði engar áhyggjur af þessu: Það hafa verið göng­u­­götur í öðrum löndum í ára­tugi. Fólk verður bara að læra á þetta.“

Í kjöl­farið beinir hún spurn­ingu til Hjálm­ars: „Læra hvað, Hjálm­­ar?“

Þurfi að læra hvernig hægt sé að bregð­ast við álita­málum

„Þegar ég var í þessu við­tali endur fyrir löngu við hana Lísu og var að tala um að fólk þyrfti að læra inn á þetta þá átti ég nátt­úr­lega við að ekki bara þeir sem eiga versl­anir og íbúðir á göngu­götum þyrftu að gera það heldur líka borg­ar­yf­ir­völd. Það geta alltaf komið upp álita­mál eins og þessi dæmi­saga Guð­rúnar lýs­ir,“ segir Hjálmar í sam­tali við Kjarn­ann.

Hjálmar bendir á að stæði fyrir hreyfi­haml­aða séu við gatna­mót Lauga­vegar og þvergatna og segir að alltaf hafi verið lögð áhersla á að stutt sé í næsta stæði fyrir hreyfi­haml­aða allan þann tíma sem Lauga­vegur hefur verið göngu­gata.

„Varð­andi svona ein­stök til­vik er ég kannski ekki með ein­hverjar lausnir á reiðum höndum en það er eitt af því sem við þurfum öll að læra, hvernig sé hægt að bregð­ast við svona til­vik­um,“ segir Hjálm­ar.

Mun biðja um að þetta verði skoðað

Spurður að því hvernig hann ætli að bregð­ast við segir Hjálm­ar: „Ég ætla að biðja um að það verði athugað hvað er hægt að gera í til­vikum sem þess­um. Ég hef ekki svörin við því en það eru þarna okkar ágætu borg­ar­hönn­uðir og svo þau sem sjá um umferð­ar­mál­in. Ég ætla að biðja um það að þetta verði skoð­að.“

Aðspurður seg­ist Hjálmar ekki hafa hugsað út í það að hafa sam­band við Guð­rúnu eða vin­konu hennar en bætir við: „Ég er alveg til í að hafa sam­band við Guð­rúnu, það er kannski ágætis hug­mynd að gera það. Hún er mjög óánægð með þetta og ég er alveg sam­mála því að það þarf að skoða þetta.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent