Borgin eignast og endurselur 19 íbúðir af 81 í nýju fjölbýli í Laugarnesi

Borgarráð hefur samþykkt kaupsamninga um 19 íbúðir í nýju fjölbýlishúsi á Kirkjusandi, auk rýmis fyrir leikskóla, sem áætlað er að fáist afhent í vor. Tíu íbúðir verða seldar til Félagsbústaða, en ekki liggur fyrir hvernig hinum níu verður ráðstafað.

Það styttist í að húsið sem um ræðir verði fullklárað.
Það styttist í að húsið sem um ræðir verði fullklárað.
Auglýsing

Borg­ar­ráð Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti á fimmtu­dag kaup­samn­inga vegna 19 íbúða í nýju fjöl­býl­is­húsi sem risið er við Hall­gerð­ar­götu 1 á Kirkju­sandi, og einnig kaup­samn­ing vegna rýmis undir leik­skóla sem til stendur að verði í hús­inu. Alls er 81 íbúð í þessu nýja húsi, sem senn verður full­bú­ið.

Íbúð­irn­ar, sem borgin kaupir af félag­inu Hall­gerð­ar­gata ehf., syst­ur­fé­lagi verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins Reir Verk sem byggir hús­ið, eru á bil­inu 42,1-73 fer­metrar á stærð og greiðir borgin á bil­inu 19-33 millj­ónir fyrir hverja og eina íbúð.

Það er óra­vegu frá mark­aðsvirði íbúða í nýjum fjöl­býl­is­húsum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en á vef sem settur hefur verið upp til þess að kynna íbúðir í þessu til­tekna húsi til sölu sést að 42,3 fer­metra íbúð á fyrstu hæð kostar 47,9 millj­ónir króna, en ein­ungis 17 íbúðir í hús­inu eru enn óseld­ar.

Þetta lága kaup­verð borg­ar­innar er byggt á samn­ingum sem gerðir voru árið 2017, í kjöl­far þess að borgin efndi til útboðs á sölu bygg­ing­ar­réttar og kaupum á íbúðum og leik­skóla­hús­næðis á lóð­inni, en upp­hæð­irnar í samn­ingum voru innan marka hámarks­bygg­ing­ar­kostn­aðar almennra íbúða sem sett voru í þágild­andi reglu­gerð um stofn­fram­lög ríkis og sveit­ar­fé­laga, hús­næð­is­sjálfs­eign­ar­stofn­anir og almennar íbúð­ir.

Auglýsing

Árið 2020 var samn­ing­ur­inn á milli borg­ar­innar og selj­anda upp­færður og verðið hækkað í takt við upp­færða reglu­gerð þar að lút­andi, en félagið sem er að byggja húsið taldi að umsamið kaup­verð væri undir kostn­að­ar­verð­i/fram­leiðslu­verði íbúða í hús­inu og sagði að erfitt hefði verið að fá banka til að fjár­magna verk­efnið af þeim sök­um.

Skjáskjot úr bæklingi borgarinnar um uppbyggingu húsnæðis í Reykjavík.

Sam­kvæmt kaup­samn­ing­unum sem borg­ar­ráð sam­þykkti á fimmtu­dag mun Reykja­vík­ur­borg alls greiða 448,4 millj­ónir króna fyrir íbúð­irnar 19 og svo 440,2 millj­ónir króna fyrir leik­skól­ann, sem á að verða afhentur í apríl næst­kom­andi. Fyr­ir­hugað er að leik­skól­inn, sem verður í um 740 fer­metra rými á jarð­hæð, verði ung­barna­leik­skóli fyrir börn á aldr­inum 12-36 mán­aða.

Ekki fleiri en 10 íbúðir verða seldar til Félags­bú­staða

Reykja­vík­ur­borg ætlar að fram­selja allar íbúð­irnar 19 og gerir ráð fyrir því, sam­kvæmt þeim gögnum sem lögð voru fyrir borg­ar­ráð, að 10 íbúðir verði seldar til Félags­bú­staða og að níu íbúðum verði „ráð­stafað síð­ar“.

Þegar fjallað var um málið í borg­ar­ráði í gær lét Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­ráðs­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins bóka að hún teldi að allar íbúð­irnar 19 ættu að renna til Félags­bú­staða.

Sam­kvæmt samn­ingum við félagið sem er að byggja húsið er ekki mögu­legt að svo verði, en í þeim er sér­stak­lega kveðið á um að íbúðir sem fram­seldar verði til Félags­bú­staða verði ekki fleiri en tíu tals­ins. Í samn­ing­unum var einnig til­tekið að borg­inni væri einnig heim­ilt að fram­selja íbúðir til leigu­fé­laga sem rekin væru án hagn­að­ar­sjón­ar­miða.

Liggur ekki fyrir hvernig íbúð­irnar verða seldar – eða á hvaða verði

Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til borg­ar­innar um það hvort fyrir lægi hvernig íbúð­unum níu sem til stendur að ráð­stafa síðar yrði ráð­staf­að. Einnig spurði blaða­maður hvort til stæði að eign­irnar yrðu seldar á því verði sem borgin greiddi fyrir þær eða hvort til­boða yrði leitað í eign­irn­ar.

Sam­kvæmt svari frá Reykja­vík­ur­borg er „hvorki búið að ákveða hvernig íbúð­unum 9 verður ráð­stafað né sölu­verð“ og einnig „liggur á þessu stigi ekki fyrir hvert fyr­ir­komu­lag söl­unnar verð­ur“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent