Borgin þurfi að leysa til sín lóð við Vesturbugt ef framkvæmdir fari ekki að hefjast

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði á opnum fundi um húsnæðismál að ef þeir aðilar sem standa að fyrirhugaðri uppbyggingu við Vesturbugt færu ekki að hefja framkvæmdir færi borgin bara að leysa lóðina til sín aftur.

Fyrirhugað uppbyggingarsvæði við Vesturbugt í Reykjavík.
Fyrirhugað uppbyggingarsvæði við Vesturbugt í Reykjavík.
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir að ef ekki fari að kom­ast hreyf­ing á upp­bygg­ingu hús­næðis á þró­un­ar­reit við Vest­ur­bugt í Reykja­vík, sem félag sem er í meiri­hluta­eigu fast­eigna­fé­lags­ins Kalda­lóns hyggst standa að, þurfi Reykja­vík­ur­borg ein­fald­lega að leysa lóð­ina aftur til sín.

„Þetta liggur inni í félagi sem heitir Kalda­lón, sem er á hluta­bréfa­mark­aði. Það er alltaf verið að segja að þeir séu að fara af stað og við erum alltaf að gera smá breyt­ingar og annað slíkt. Þetta verður bara að fara af stað, ann­ars förum við bara að leysa þessa lóð til okkar aft­ur. Það verður bara að vera þannig, því að við viljum að sú hús­næð­is­upp­bygg­ing sem er í píp­unum og fólk tekur mið af í sínum áætl­un­um, að hún gangi eft­ir,“ sagði borg­ar­stjóri í erindi sínu á árlegum fundi um hús­næð­is­upp­bygg­ingu í Reykja­vík­ur­borg, sem hald­inn var í morg­un.

Sagði hann sam­þykkt skipu­lagið á reitnum vera frá­bært og að það væri „al­gjör synd“ að það væri ekki komið til fram­kvæmda nú þeg­ar.

Auglýsing

Tölu­vert hefur verið fjallað um fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu á reitnum í fréttum und­an­farin ár.

Í Við­skipta­blað­inu sagði frá því snemma árið 2018, er Kalda­lón keypti sig inn í félag sem heitir Vest­ur­bugt og þar með verk­efn­ið, að fram­kvæmdir gætu haf­ist síðar á því ári.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Mynd: Bára Huld Beck.

Haustið 2020 sagði svo frá því í frétt Stöðvar 2 að það stytt­ist í fram­kvæmdir á reitn­um. Þá var búið að breyta skipu­lagi aðeins og fjölga íbúð­unum á reitn­um.

Í Morg­un­blað­inu var svo síð­ast­liðið sumar fjallað um frek­ari skipu­lags­breyt­ingar og fjölgun íbúða á reitnum og haft eftir Jónasi Þór Þor­valds­syni fram­kvæmda­stjóra Kalda­lóns að hönnun væri að ljúka. Einnig sagði hann að ef fram­kvæmdir myndu hefj­ast um nýliðin ára­mót, sem þær gerðu ekki, mætti búast við fyrstu íbúð­unum á markað um mitt árið 2023.

Sagð­ist „hand­rukk­ari tíma­línu í hús­næð­is­mál­um“

Skömmu áður í erindi sínu hafði Dagur fjallað um annan reit sem ekk­ert hefur hreyfst und­an­farin ár þrátt fyrir að skipu­lagið sé löngu til­bú­ið, svo­kall­aðan Blóma­vals­reit í Laug­ar­nes­hverfi, sem Íslands­hótel eiga.

„Ég er alltaf að hringja í Ólaf Torfa­son sem á Íslands­hótel og þessa lóð og hann er alveg far­inn að taka á sig krók, því ég er svona hand­rukk­ari tíma­línu þegar hús­næð­is­mál eru ann­ars veg­ar,“ sagði Dag­ur, en skipu­lag reits­ins var kynnt árið 2015 án þess að upp­bygg­ing hafi farið af stað. Íslands­hótel áforma að fara af stað með fram­kvæmdir á reitnum á þessu ári.

Borgin seg­ist ætla að tvö­falda lóða­fram­boð

Í erindi sínu á fund­inum á morgun kynnti borg­ar­stjóri að Reykja­vík­ur­borg hefði áform um að tvö­falda lóða­fram­boð í borg­inni á hverju ári næstu fimm ár, úr 1.000 lóðum upp í 2.000.

Í frétta­til­kynn­ingu um þetta atriði sem barst frá Reykja­vík­ur­borg í dag segir að þetta sér gert „í ljósi þess skorts sem nú er á nýjum eignum á hús­næð­is­mark­aði“ og sé í takti við breytt mat Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar um þörf á fjölda íbúða.

„Stofn­unin hefur metið þarfir mark­að­ar­ins um 3.500-4.000 íbúðir á ári á öllu land­inu. Með tvö­földun myndi hlutur Reykja­víkur í upp­bygg­ingu á land­inu vaxa frá því að vera þriðj­ungur í að verða að minnsta kosti helm­ingur upp­bygg­ing­ar,“ segir í til­kynn­ingu borg­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent