Brim hagnaðist um 6,9 milljarða króna á fyrri helmingi ársins

Eigið fé Brims var 58,6 milljarðar króna um mitt þetta ár og markaðsvirði útgerðarrisans er nú um 189 milljarðar króna. Það hefur hækkað um 84 prósent frá því í september í fyrra. Í millitíðinni var úthlutað stærsta loðnukvóta í tvo áratugi.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi Brims.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi Brims.
Auglýsing

Útgerð­ar­fé­lagið Brim hagn­að­ist um 6,9 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Hagn­aður félags­ins var 113 pró­sent meiri en á sama tíma­bili í fyrra þegar hann er reikn­aður í evr­um, upp­gjörs­mynt Brim­s. 

Tekjur Brims á fyrri helm­ingi árs­ins 2021 voru 34,3 millj­arðar króna og eigið fé félags­ins 58,6 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 50,4 pró­sent um mitt þetta ár.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands er haft eftir Guð­mundi Krist­jáns­syni, for­stjóra og stærsta eig­anda Brims, að loðnu­ver­tíðin hafi haft jákvæð áhrif á rekstur félags­ins en á móti hafi orðið sam­dráttur í veiði­heim­ildum á þorski. Þá hafi verð á alþjóða­mörk­uðum verið hag­stæð og auk­inn ávinn­ingur fallið til vegna fjár­fest­inga félags­ins und­an­farin ár í skipum og afla­heim­ild­um, hátækni­bún­aði við vinnslu og sölu­fé­lög­um. 

Loðnu­kvót­inn skipti lyk­il­máli

Þann 1. októ­ber 2021 lagði Haf­rann­sókna­stofnun til að gefin yrði út 904.200 tonna kvóti af loðnu á fisk­veið­i­­ár­inu 2021/2022. 

Auglýsing
Nokkrum mán­uðum síð­­­ar, 18. febr­­úar 2022, var loðn­u­ráð­­gjöfin lækkuð um 34.600 tonn niður í 869.600 tonn. Hluti hans fór til Norð­­manna, Græn­­lend­inga og Fær­ey­inga en kvóti íslenskra útgerða var 686 þús­und tonn. Af honum tókst að veiða 521 þús­und tonn, eða 76 pró­­sent úthlut­aðs kvóta. 

Engum loðn­u­kvóta hafði verið úthlutað í tvö ár áður en kom að þessum risa­kvóta, sem var sá stærsti í tæpa tvo ára­tugi, þannig að um gríð­­ar­­lega búbót var að ræða fyrir útgerðir sem fengu úthlutað loðnu og þjóð­­ar­­búið í heild. 

Þrjú fyr­ir­tækið fengu 56,5 pró­­­sent af þeim loðn­­u­kvóta sem var úthlut­að. Ísfé­lag Vest­­­manna­eyja, einka­­­fyr­ir­tæki að mestu í eigu Guð­­­bjargar Matt­h­í­a­s­dóttur og barna henn­­­ar, fékk mest, 19,99 pró­­­sent. Síld­­­ar­vinnslan og tengd félög komu þar á eftir með 18,5 pró­­­sent og Brim var í þriðja sæti með um 18 pró­­­sent.

Brim hefur verið skráð í Kaup­höll Íslands frá árinu 2014 og er eitt tveggja útgerð­ar­fé­laga sem er skráð þar. Hitt er Síld­ar­vinnsl­an. 

Brim er stærsta ein­staka útgerð­­­ar­­­fyr­ir­tæki lands­ins og mark­aðsvirði þess er sem stendur 188,7 millj­­­arðar króna og hefur hækkað um 84 pró­­sent frá því í sept­­em­ber í fyrra, eða skömmu áður en til­kynnt var um úthlutun á risa­kvóta á loðn­u. 

Langstærsti eig­andi þess er Útgerð­­­­­­ar­­­­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­­­­­­­ur, sem á 43,97 pró­­­­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­­­­ur­­­­­­fé­lag sitt RE-13 ehf. Það félag er að upp­­i­­­­stöðu í eigu Guð­­­mundar Krist­jáns­­­son­­­ar.

Greiddi 22 pró­sent af arð­greiðslu í veiði­gjöld

Brim hagn­að­ist um 11,3 millj­­arða króna á síð­­asta ári, sem er mikil aukn­ing frá þeim 4,7 millj­­arða króna hagn­aði sem félagið sýndi á árinu 2020. 

Á grund­velli þess hagn­aðar sem féll til í fyrra ákvað  Brim að greiða hlut­höfum sínum rúm­­lega fjóra millj­­arða króna í arð. Í árs­­reikn­ingi þess kom söm­u­­leiðis fram að Brim greiddi alls um 907 millj­­ónir króna í veið­i­­­gjald á árinu 2021, ef miðað er við með­­al­­gengi evru á árinu. Það er rúm­­lega tvö­­falt það sem Brim greiddi í veið­i­­­gjöld árið áður. 

Því námu veið­i­­gjalda­greiðslur Brim til rík­­is­­sjóðs fyrir afnot af sjá­v­­­ar­út­­­vegsauð­lind­inni rúm­­lega 22 pró­­sent af þeirri greiðslu sem félagið greiddi hlut­höfum sínum í arð vegna síð­­asta árs og um átta pró­­sent af hagn­aði Brim á árinu 2021.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent