Virka efnið í ofskynjunarsveppum virðist geta hjálpað áfengissjúklingum að ná bata

Sterkar vísbendingar eru uppi um að notkun sílósíbins geti, samfara samtalsmeðferð, hjálpað áfengissjúklingum að draga úr drykkju eða hætta að drekka. Ný bandarísk rannsókn á þessu hefur vakið mikla athygli.

Allnokkrar tegundir sveppa sem vaxa í náttúrunni innihalda efnið sílósíbin, sem veldur ofskynjunaráhrifum.
Allnokkrar tegundir sveppa sem vaxa í náttúrunni innihalda efnið sílósíbin, sem veldur ofskynjunaráhrifum.
Auglýsing

Sílósíbin, virka efnið í ofskynj­un­ar­svepp­um, skil­aði árangri við að hjálpa ofdrykkju­fólki að draga úr áfeng­is­neyslu eða hætta alfar­ið, í klínískri rann­sókn sem fram­kvæmd var í Banda­ríkj­un­um.

Nið­ur­stöð­urnar voru birtar á mið­viku­dag í JAMA, fræða­tíma­riti banda­rísku lækna­sam­tak­anna, og hafa vakið tölu­verða athygli.

Rann­sak­end­urnir gerðu til­raun á hópi alls 93 ein­stak­linga sem þjást af áfeng­is­sýki. Hún fór þannig fram að þátt­tak­endum var boðin 12 vikna sam­tals­með­ferð við áfeng­is­sýk­inni og í vikum 4 og 8, með mán­aðar milli­bili, var þáttak­end­unum ýmist gefið til­tölu­lega stór skammtur af sílósíbin (25-40 milli­grömm á hver 70 kíló lík­ams­þyngd­ar) eða lyf­leysa í töflu­formi í löngum hug­leiðslu­tíma.

Eftir að hafa inn­byrt ofskynj­un­ar­efnið eða lyf­leys­una var þátt­tak­endum gert að leggj­ast á sófa, með augun hulin og hlusta á tón­list í heyrn­ar­tól­um.

Næstum helm­ing­ur­inn hafði hætt að drekka

Nið­ur­stöð­urnar voru þær að 32 vikum eftir að fyrri lyfja­gjöfin fór fram hafði þeim ein­stak­lingum sem fengu sílósíbin gengið betur að losna undan áfeng­is­böl­inu.

Á þeim tíma sem lið­inn var frá fyrri hug­leiðslu­tím­anum höfðu þeir 49 ein­stak­lingar sem fengu sílósíbin drukkið mikið áfengi 9,7 pró­sent dag­anna, en þeir 43 sem fengu lyf­leys­una og voru í sam­an­burð­ar­hópnum drukku mikið 23,6 pró­sent dag­anna að með­al­tali.

Næstum helm­ingur þeirra sem fengu ofskynj­un­ar­efnið höfðu alfarið náð að hætta að drekka, miðað við 24 pró­sent þeirra sem voru í sam­an­burð­ar­hópnum og fengu lyf­leys­una með­fram sam­tals­með­ferð­inni.

Auglýsing

Sam­kvæmt rann­sak­endum er þörf á frek­ari rann­sóknum á þessu, til þess að sjá hvort áhrifin séu langvar­andi og hvort sömu áhrif verði sýni­leg ef stærri hópur tekur þátt í rann­sókn á virkni sílósíbin í þessum til­gangi.

Lítið er vitað um það nákvæm­lega af hverju sílósíbín veldur þessum áhrif­um, en þó er talið að virkni sílósíbín auki teng­ingar í heil­an­um, að minnsta kosti til skamms tíma.

Í frétt Associ­ated Press um rann­sókn­ina er haft eftir lækn­inum Mich­ael Bog­enschutz, sem leiðir rann­sókn­ar­deild ofskynj­un­ar­lyfja við New York-há­skóla (NYU) og var í for­svari fyrir þessa klínísku rann­sókn, að nýjar teng­ingar verði til í heil­anum við inn­töku sílósíbín.

Kenn­ing hans sem rann­sak­enda er sú, að ef sam­tals­með­ferð sé beitt á sama tíma og þessar nýju teng­ingar í heil­anum eru virkar, gæti verið hægt að venja heil­ann af slæmum ávönum og móta nýjar venjur og við­horf – jafn­vel til fram­búð­ar.

Ólög­legir víð­ast hvar en vöxtur í rann­sóknum

Ofskynj­un­ar­sveppir eru ólög­legir víð­ast hvar. Hér á landi falla þeir undir lög um ávana- og fíkni­efni og neysla þeirra bönnuð með öllu.

Á und­an­förnum árum og ára­tugum hafa þó marg­vís­legar rann­sóknir farið fram á gildi virka efn­is­ins sílósíbín til með­höndl­unar á ýmsum þeim kvillum sem hrjá mann­kyn­ið, til dæmis geð­rænum vanda­málum á borð við kvíða og þung­lyndi og svo fíkni­sjúk­dóm­um.

Háskólar erlendis hafa margir sett upp sér­stakar rann­sókn­ar­deildir til þess að skoða kosti ofskynj­un­ar­efna í lækn­inga­skyni og margir sér­fræð­ingar í geð­lækn­ingum binda vonir við að geta farið að nýta slík efni í með­ferðum sínum á næstu árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent