Framsóknarflokkurinn rétt rúmu prósentustigi minni en Sjálfstæðisflokkur

Sósíalistaflokkurinn mælist næstum jafn stór og Vinstri græn í nýrri könnun. Sameiginlegt fylgi Pírata og Samfylkingar mælist nú jafn mikið og sameiginlegt fylgi þeirra beggja og Viðreisnar var í kosningunum í fyrrahaust.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt nýrri könnun Mask­ínu á fylgi stjórn­mála­flokka. Hann nýtur stuðn­ings 20,9 pró­sent lands­manna, sem er 3,5 pró­sentu­stigum minna en fylgi flokks­ins mæld­ist í júlí. Hann er sem stendur vel undir kjör­fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra­haust. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú nán­ast jafn stór og Sjálf­stæð­is­flokk­ur, en 19,6 pró­sent aðspurðra sögð­ust ætla að kjósa hann ef kosið yrði nú. Fram­sókn bætir við sig 1,6 pró­sentu­stigi milli mán­aða og fylgi flokks­ins hefur ekki  mælst meira í könn­unum Mask­ínu, sem teygja sig aftur til des­em­ber 2020. Fram­sókn er að mæl­ast með 2,3 pró­sentu­stigum meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021.

Auglýsing
Þriðji stjórn­ar­flokk­ur­inn, Vinstri græn, mæl­ast nú með 7,5 pró­sent fylgi sem er umtals­vert undir þeim 12,6 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um. Alls hafa Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dótt­ur, tapað 5,1 pró­sentu­stigi það sem af er kjör­tíma­bil­i. 

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa því sam­tals tapað 6,3 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum þegar þeir fengu 54,3 pró­sent atkvæða. Þeir njóta því stuðn­ings minni­hluta kjós­enda sem stend­ur. 

Sós­í­alistar næstum jafn stórir og Vinstri græn

Ein mestu tíð­indin í könnun Mask­ínu eru þau að Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem á ekki þing­mann eins og er, mælist nán­ast jafn stór og Vinstri græn, sá flokkur sem stendur honum næst á hinum hefð­bundna vinstri-hægri mæli­kvarða. Alls segj­ast 7,3 pró­sent kjós­enda að þau myndu kjósa Sós­í­alista­flokk­inn ef kosið yrði í dag. 

Píratar mæl­ast þriðji stærsti flokkur lands­ins með 13,9 pró­sent fylgi og bæta við sig rúmu pró­sentu­stigi milli mán­aða. Skammt á eftir kemur Sam­fylk­ing­in, sem mun kjósa nýjan for­mann í haust, með 12,9 pró­sent sem er tveimur pró­sentu­stigum meira en í júlí. Við­reisn hress­ist líka milli mán­aða og mælist með 8,9 pró­sent fylgi, sem er 0,6 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn mæld­ist með í síð­asta mán­uði. Þessir þrír flokk­ar: Pírat­ar, Sam­fylk­ing og Við­reisn, eru allir að mæl­ast með fylgi umfram kjör­fylgi. Þeir fengu sam­tals 26,8 pró­sent í kosn­ing­unum í fyrra­haust en mæl­ast nú með sam­tals með 35,7 pró­sent stuðn­ing. Fylgi Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar nú er jafn mikil og allra flokk­anna þriggja var þá. 

Tveir flokkar undir fimm pró­sentum

Flokkur fólks­ins mælist með undir fimm pró­sent fylgi í fyrsta sinn á þessu ári hjá Mask­ínu í nýj­ustu könn­un­inni. Þar segir að fylgið sé 4,6 pró­sent, sem er 2,5 pró­sentu­stigi minna en í júlí. Það er nán­ast sama fylgi og Mið­flokk­ur­inn mælist með, en 4,5 pró­sent aðspurðra sögð­ust styðja þann flokk í könn­un­inni, sem er 1,5 pró­sentu­stigi minna en í fyrra­vor. 

Auglýsing
Athyglisvert er að skoða fylgi flokka út frá búsetu. Í höf­uð­borg­inni Reykja­vík mæl­ast Píratar stærsti flokk­ur­inn með 19,1 pró­sent fylgi, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kemur þar næst með 17,4 pró­sent og Sam­fylk­ingin skammt þar á eftir með 17 pró­sent fylgi. Fram­sókn nýtur ein­ungis stuðn­ings 12,2 pró­sent kjós­enda þar og Vinstri græn 7,1 pró­sent, á meðan að Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með 10,7 pró­sent fylgi og Við­reisn með 9,7 pró­sent. 

Könn­unin fór fram dag­ana 12. til 17. ágúst 2022 og 890 svar­endur tóku afstöðu til flokks.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent