Brotthvarf Swift af Spotify snýst um sölu á útgáfufyrirtæki

000-458100034.jpg
Auglýsing

Líkt og Kjarn­inn greindi frá í gær þá ákvað Taylor Swift, stærsta popp­stjarna sam­tím­ans, að láta fjar­lægja allar plötur sem hún hefur gefið út af tón­list­ar­veit­unni Spoti­fy. Sú aðgerð er gríð­ar­legt áfall fyrir Spotify enda Swift á meðal vin­sæl­ustu lista­manna hjá tugum millj­óna not­enda sem borga mán­að­ar­lega fyrir aðgang að veit­unni.

Nú greinir Business Insider frá því að ástæðan fyrir því að plötur Swift eru ekki lengur aðgengi­legar á Spotify sé sú að Scott Borchetta, aðal­eig­andi og for­stjóri útgáfu­fyr­ir­tækis Swift, The Big Machine Label Group, sé að reyna að selja fyr­ir­tækið sitt. Borchetta vill fá um 200 millj­ónir dali, um 24,4 millj­arða króna, og er víst þeirrar skoð­unar að vænt­an­legir kaup­endur muni ein­ungis horfa til þess hversu margar plötur fyr­ir­tækið selji þegar þeir taka afstöðu til verð­mið­ans. Sam­kvæmt frétt Business Insider er hann þeirrar skoð­unar að spil­anir laga á Spotify muni ekki hafa nein telj­andi áhrif á kaup­verð­ið.

Þetta er viðmótið sem mætir notendum Spotify þegar þeir reyna að spila plötur og lög Taylor Swift. Þetta er við­mótið sem mætir not­endum Spotify þegar þeir reyna að spila plötur og lög Taylor Swift.

Auglýsing

Virkar til skamms tíma, veldur skaða til langs tíma



Því er Borchetta að fjar­lægja tón­list Swift til að skapa skort á tón­list Swift og þar með ýta áhan­gendum hennar í átt að því að kaupa nýj­ustu plötu hennar 1989, sem kom út í síð­ustu viku, annað hvort á geisla­disk eða í gegnum nið­ur­hal á síðum á borð við iTu­nes, sem skilar meiru í vas­ann en hlust­anir á Spoti­fy.

Til skamms tíma virð­ist aðgerð­ar­fræðin vera að virka. Talið er að ný plata Swift hafi selst í 1,3 millj­ónum ein­taka fyrstu helg­ina eftir að hún kom út. Reyn­ist það rétt er um að ræða mestu sölu á plötu á einni helgi í Banda­ríkj­unum frá árinu 2002, sem er ári áður en iTu­nes varð til og ger­bylti tón­list­ar­geir­an­um.

Uni­ver­sal Music Group, sem sér um dref­ingu á tón­list Swift fyrir útgáfu­fyr­ir­tæki Borchetta, hefur reynt mikið að fá hann til að skipta um skoðun og telur nálgun hans vera mjög gam­al­dags. Til lengri tíma muni hún líka hafa nei­kvæð áhrif á vin­sældir Swift, sem er gríð­ar­lega vin­sæl á Spoti­fy. Fjórði hver not­andi tón­list­ar­veit­unnar hefur streymt lagi eftir hana og lög hennar eru á um 20 milljón spil­un­ar­list­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None