Búast við að stýrivextir verði komnir upp í sex prósent í byrjun næsta árs

Markaðsaðilar vænta þess að verðbólgan sé við hámark nú um stundir en að hún muni hjaðna hægar. Í vor bjuggust þeir við að verðbólga eftir ár yrði fimm prósent en nú telja þeir að hún verði 5,8 prósent.

Seðlabankinn mun kynna næstu stýrivaxtaákvörðun í næstu viku.
Seðlabankinn mun kynna næstu stýrivaxtaákvörðun í næstu viku.
Auglýsing

Ný könnun Seðla­banka Íslands, sem gerð var á meðal mark­aðs­að­ila á skulda­bréfa­mark­aði, sýnir að þeir búast við því að stýri­vextir muni hækka í 5,5 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi 2022 og verði í fram­hald­inu sex pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi næsta árs. 

Stýri­vextir eru sem stendur 4,75 pró­sent og hafa hækkað um fjögur pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra. Sú hækkun hefur haft mikil áhrif á afborg­anir á hús­næð­is­lán­um. Í nýlegri hag­­sjá Lands­­­­bank­ans var tekið dæmi af 40 millj­­­­óna króna láni á lægstu óverð­­­­tryggðu vöxt­­­­um. Vaxta­­­­byrði þeirra hefur hækkað um 98 þús­und krónur frá því í maí í fyrra. Lands­­­­bank­inn býst við því að vextir haldi áfram að hækka og að vaxta­­­­byrðin muni aukast um 25 þús­und krónur í við­­­­bót á þessu ári. Þá hefur hún farið úr 110 þús­und krónum á mán­uði i 233 þús­und krónur á mán­uð­i. Í nýlegri könnun sem Pró­sent gerði fyrir Frétta­blaðið kom fram að rúm­lega þriðj­ungur svar­enda notar allt ráð­stöf­un­arfé sitt á mán­uði til að ná endum sam­an, er að ganga á sparnað eða safna skuld­um. 

Spá því að verð­bólgan verði 5,8 pró­sent eftir ár

Alls var könnun Seðla­bank­ans send til 31 mark­aðs­að­ila. Um er að ræða banka, líf­eyr­is­sjóði, verð­bréfa- og fjár­fest­ing­ar­sjóði, verð­bréfa­miðl­ara og fyr­ir­tæki með starfs­leyfi til eigna­stýr­ing­ar. Alls svör­uðu 24 þeirra könn­un­inn­i. 

Auglýsing
Niðurstöður hennar gefa til kynna að vænt­ingar svar­enda séu svart­sýnni en áður. Nú búast þeir við að verð­bólgan, sem nú er 9,9 pró­sent, sem við hámark og verði að með­al­tali tíu pró­sent. Í kjöl­farið fari hún að hjaðna, en hægar en þeir töldu áður. Nú spá þeir að verð­bólgan verði 5,8 pró­sent eftir eitt ár og fjögur pró­sent eftir tvö. í síð­ustu könn­un, sem gerð var í apr­íl, töldu mark­aðs­að­ilar að verð­bólgan yrði fimm pró­sent að ári liðn­u. 

Miðað við mið­gildi svara í könn­un­inni búast mark­aðs­að­ilar við því að stýri­vextir Seðla­bank­ans hækki í 5,5 pró­sent á yfir­stand­andi fjórð­ungi og að þeir hækki enn frekar í fram­hald­inu og verði sex pró­sent á fyrsta fjórð­ungi næsta árs. „Þá vænta þeir þess að vextir lækki aftur og verði 5,5 pró­sent eftir eitt ár og að þeir lækki í um 4,5 pró­sent að tveimur árum liðn­um. Þetta eru hærri vextir en mark­aðs­að­ilar bjugg­ust við í könnun bank­ans í apr­íl.“

Mark­aðs­að­ilar voru líka spurðir um afstöðu til taum­halds pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans. „Nokkur breyt­ing var á afstöðu svar­enda til taum­halds pen­inga­stefn­unnar en þeim fækk­aði sem telja að taum­haldið sé of laust og er hlut­fall þeirra 67% en hlut­fallið var 79 pró­sent í apr­íl. Þá fjölg­aði þeim sem telja taum­haldið hæfi­legt og er hlut­fall þeirra um 29 pró­sent sam­an­borið við 17 pró­sent í síð­ustu könn­un. Rúm­lega fjögur pró­sent svar­enda í könn­un­inni eru þeirrar skoð­unar að taum­haldið sé of þétt sem er sama hlut­fall og í apr­íl.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent