Rúmlega þriðjungur heimila á ekkert eftir í veskinu í lok mánaðar

Næstum átta af hverjum tíu í lægsta tekjuhópnum ná ekki að leggja neitt fyrir, ganga á sparnað eða safna skuldum í yfirstandandi dýrtíð. Hjá efsta tekjuhópnum geta næstum níu af hverjum tíu enn lagt fyrir, sumir umtalsvert.

1. maí 2019
Auglýsing

Alls 34 pró­sent heim­ila nota allt ráð­stöf­un­arfé sitt til að ná endum saman í hverjum mán­uði, eru að ganga á sparnað eða að safna skuld­um. Þetta kemur fram í nýrri könnun Pró­sents sem Frétta­blaðið greinir frá í dag. 

Þar segir að tæpur fjórð­ungur aðspurðra, 24 pró­sent, nái endum saman með naum­indum en tíu pró­sent séu annað hvort að ganga á sparnað eða safna skuld­um. Alls 49 pró­sent aðspurðra ná að leggja eitt­hvað fyrir um hver mán­aða­mót. 

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins segir að staðan sé áber­andi verst á Reykja­nesi, þar sem 57 pró­sent aðspurðra leggja ekk­ert fyr­ir, ganga á sparnað eða safna skuld­um.

Eðli máls­ins sam­kvæmt er staðan verst hjá hinum tekju­lægstu, en hjá þeim sem eru með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði eiga tæp­lega átta af hverjum tíu ekki neitt eftir í vesk­inu í lok mán­að­ar. Á sama tíma geta níu af hverjum tíu í efsta tekju­hópn­um, þeim sem eru með heim­il­is­tekjur yfir 1,5 millj­ónir króna á mán­uði, lagt fyrir og helm­ingur þess hóps á tals­verðan afgang. 

Hærri vextir bíta fast

Yfir­stand­andi dýr­tíð virð­ist sam­kvæmt þessu vera farin að bíta suma hópa sam­fé­lags­ins ansi fast. Verð­bólga mælist enda 9,9 pró­sent og grein­ing­ar­að­ilar spá því að hún eigi enn eftir að hækka. Stærsti ein­staki þátt­ur­inn í hækk­andi verð­bólgu hefur verið gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verð­i. 

Auglýsing
Til að berj­ast gegn verð­bólg­unni hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti í 4,75 pró­sent, sem er fjög­urra pró­sentu­stiga hækkun frá því sem þeir voru í fyrra­vor.

Hag­stofan greindi frá því fyrr á þessu ári að hlut­­fall þeirra heim­ila sem bjuggu við íþyngj­andi hús­næð­is­­kostnað (greiddu meira en 40 pró­­sent af ráð­­stöf­un­­ar­­tekjum sínum í að halda þaki yfir höf­uð­ið) hafi verið 12,8 pró­­sent í fyrra og það hafi ­auk­ist milli ára. 

Í ljósi þess að stýri­vextir hafa hækkað um 2,75 pró­­sent­u­­stig síðan um ára­­mót án þess að laun hafi hækkað mikið liggur fyrir að þetta hlut­­fall mun ­hækka umtals­vert á árinu 2022.

Allar nauð­synja­vörur hækkað í verði

Á meðan að á kór­ón­u­veiru­far­aldr­inum stóð, og vextir voru í sög­u­­legum lægð­um, þre­­­föld­uð­ust óverð­­­tryggð hús­næð­is­lán við­­­skipta­­­bank­anna, fóru úr 370 millj­­­örðum króna í 1.090 millj­­­arða króna. Greiðslu­­byrði þessa hóps hefur hækkað gríð­­ar­­lega sam­hliða vaxta­hækk­­un­­um.

Í nýlegri hag­sjá Lands­­­bank­ans var tekið dæmi af 40 millj­­­óna króna láni á lægstu óverð­­­tryggðu vöxt­­­um.

­Vaxta­­­byrði þeirra hefur hækkað um 98 þús­und krónur frá því í maí í fyrra. Lands­­­bank­inn býst við því að vextir haldi áfram að hækka og að vaxta­­­byrðin muni aukast um 25 þús­und krónur í við­­­bót á þessu ári. Þá hefur hún farið úr 110 þús­und krónum á mán­uði i 233 þús­und krónur á mán­uð­i. 

Ofan á þessar hækk­anir á afborg­unum af hús­næð­is­lánum hefur elds­neyt­is­verð hækkað mik­ið, eða um 72 pró­sent á tveimur árum. Í nýj­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans kom fram að sá sem greiddi 15 þús­und krónur á mán­uði í bens­ín­kostnað í maí 2020 þurfti um miðjan síð­asta mánuð að punga út rúm­lega 137 þús­und krónum til við­bótar á ári til að kaupa sama magn af elds­neyti. Þá eru ótaldar miklar hækk­anir á mat og drykk, inn­fluttum nauð­synja­vörum eins og fatn­aði og ferða­lög­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent