Coca-Cola og McDonalds, Visa og Budweiser krefjast afsagnar Blatter vegna spillingarmála

blatter_peningar.jpg
Auglýsing

Stærstu styrkt­ar­að­ilar Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins (FIFA) lýstu því yfir í gær að þau krefj­ist taf­ar­lausrar afsagnar Sepp Blatt­er, for­seta sam­bands­ins, vegna þeirra spill­ing­ar­mála sem hann er tal­inn tengj­ast. Um er að ræða alþjóð­legu risa­fyr­ir­tækin Coca-Cola, McDon­alds, Visa og Anheuser-Busch, eig­anda Bud­weisi­er-vöru­merk­is­ins. Reuter­s-frétta­stofan greinir frá.

Yfir­lýs­ingar fyr­ir­tækj­anna, sem inni­halda allar sam­bæri­legt orða­lag, voru sendar út viku eftir að yfir­völd í Sviss til­kynntu að þau hafi byrjað form­lega saka­mála­rann­sókn á Blatt­er. Í yfir­lýs­ingu Coca-Cola sagði meðal ann­ars: "Á hverjum degi sem líður þá heldur ímynd og orð­spor FIFA áfram að skaðast[...]FIFA þarf á alhliða umbótum að halda". Í yfir­lýs­ingu McDon­alds sagði að atburðir lið­inna vikna hefðu grafið frekar undan orð­spori FIFA og trausti almenn­ings á leið­toga­sam­bands­ins.

Blatt­er, sem er orð­inn 79 ára gam­all og hefur stýrt FIFA í 17 ár, brást við með því að segja að hann muni ekki segja af sér. Það væri ekki í þágu FIFA að gera það.

Auglýsing

Ætlar ekki að hætta fyrr en í febr­úar



Blatter var fyrr á þessu ári end­ur­kjör­inn for­seti FIFA þrátt fyrir að hreyf­ingin hafi orðið fyrir miklum þrýst­ingi um að gera það ekki í ljósi ara­grúa spill­ing­ar­mála sem upp hafa komið innan þess á und­an­förnum miss­er­um. Spill­ing­ar­mál­unum fjölg­aði enn frekar í kjöl­far kosn­ing­anna og á end­anum til­kynnti Blatter að hann myndi hætta, en ekki fyrr en í febr­úar á næsta ári. Hann telur sig enn geta unnið aftur tapað orð­spor á þeim tíma og segir engan betri til að end­ur­vekja til­trú almenn­ings og styrkt­ar­að­ila á FIFA.

Blatter hefur falið sig á bak­við það að hann hafi sjálfur ekki verið til rann­sókn­ar, þótt flestir nán­ustu sam­starfs­menn hans hafi verið það og hin meinta spill­ing sem þrífst innan FIFA hafi gerst á hans vakt.

Tal­inn hafa mútað Plat­ini



Þetta breytt­ist allt í síð­ustu viku þegar yfir­völd í Sviss, þar sem höf­uð­stöðvar FIFA eru stað­sett­ar, til­kynntu að þau séu búin að hefja rann­sókn á því hvort Blatter hafi gerst sekur um lög­brot.

Rann­sóknin á Blatter er hluti af viða­mik­illi rann­sókn á FIFA og spill­ingu innan sam­bands­ins.

Gerð var hús­leit í höf­uð­stöðvum FIFA í Zurich í Sviss og gögn voru tekin af skrif­stofu Blatt­er.

Ann­ars vegar er Blatter grun­aður um að hafa skrifað undir samn­ing við knatt­spyrnu­sam­bandið í kar­ab­íska haf­inu, þar sem Jack Warner var þá for­seti, en samn­ing­ur­inn er sagður hafa verið FIFA í óhag. Þá sé líka grunur um að við inn­leið­ingu þessa samn­ings hafi Blatter brotið gegn skyldum sínum og tekið ákvarð­anir sem sköð­uðu hags­muni FIFA.

Þetta er talið tengj­ast sjón­varps­rétt­inda­samn­ingum sem sýndu fram á að Blatter sam­þykkti að selja rétt­indi til Warn­er, sem var einnig áhrifa­mik­ill innan FIFA og hefur verið til rann­sóknar vegna spill­ing­ar, undir mark­aðsvirði.

Til við­bótar við þetta er Blatter sak­aður um að hafa greitt „óheið­ar­lega“ greiðslu upp á tvær millj­ónir sviss­neskra franka til Michel Plat­ini, sem er for­seti Evr­ópska knatt­spyrnu­sam­band­ins UEFA, og einn þeirra sem vill taka við af Blatter hjá FIFA. Þessi greiðsla er sögð skráð sem greiðsla fyrir vinnu sem hafi átt sér stað frá 1999 til 2002, en greiðslan átti sér stað árið 2011. Lík­legt er talið að þetta mál muni koma í veg fyrir að Plat­ini geti boðið sig fram til for­seta FIFA á næsta ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None