Converse stefnir eiginlega öllum vegna "Chuck" eftirlíkinga

M9622-CONVERSE-ALL-STAR-HI-NAVY0003.jpg
Auglýsing

Skófram­leið­and­inn Con­ver­se, sem er í eigu fat­ar­isans Ni­ke, hefur stefnt 31 smá­sölu­keðju, meðal ann­ars Wal­mart, Kmart, Skechers og H&M, fyrir að fram­leiða og selja eft­ir­lík­ingar af hinum goð­sagna­kenndu "Chuck" striga­skóm. Huffington Post segir frá mál­inu.

Í frétta­til­kynn­ingu sem Con­verse sendi fjöl­miðlum vegna máls­ins er haft eftir Jim Cal­houn for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins að "Chuck Taylor" striga­skórnir hafi notið fádæma vin­sælda til fjölda ára, og á síð­ustu hund­rað árum hafi Con­verse selt um millj­arð skópara af þessum vin­sælu striga­skóm víða um heim. "Við fögnum heið­ar­legri sam­keppni, en teljum að önnur fyr­ir­tæki hafi engan rétt til þess að herma eftir sögu­frægu útliti "Chuck" striga­skó­s­ins."

Con­verse All-Star striga­skórnir komu fyrst á markað árið 1917. Í upp­hafi þriðja ára­tug­ar­ins var nafni þeirra breytt í Chuck Taylor All-St­ars eftir sam­nefndum körfu­bolta­manni, sem varð mik­ill tals­maður þeirra, og ruddi þar með braut­ina fyr­ir­ ­skófram­leið­endur að merkja vörur sín­ar frægum ein­stak­lingum við mark­aðs­setn­ingu þeirra.

Auglýsing

Í upp­hafi var saumað stjörnu­laga merki á skóna til að vernda ökkla körfu­bolta­leik­manna, en striga­skórnir með gúmmí­tána þró­uð­ust úr því að vera fyrst og síð­ast íþrótta­skór yfir í það að verða gríð­ar­lega vin­sælir á meðal gruggrokk­ara og pönk­ara á níunda ára­tugn­um.

Í stefnu Con­ver­se, sem var þing­fest fyrir dóm­stólum í New York í síð­ustu viku, er því haldið fram að fram­leiðsla eft­ir­lík­inga á vörum fyr­ir­tæk­is­ins hafi snar­auk­ist síðan árið 2008. Fyr­ir­tæk­ið, sem sendi einnig kvörtun til­ fram­kvæmda­stjórnar Alþjóð­lega versl­un­ar­ráðs­ins vegna máls­ins, krefst skaða­bóta úr hendi hinna stefndu sem verði ákvarð­aðar fyrir dóm­stól­um. Miðað við útbreiðslu eft­ir­lík­inga af Chuck striga­skón­um, má reikna með að skaða­bæt­urnar muni nema him­in­há­aum fjár­hæð­um, fall­ist dóm­stólar á mála­til­búnað Con­ver­se.

Wal­mart, Kmart og H&M urðu ekki við beiðni Huffington Post um við­brögð við stefnu Con­ver­se. Þá sagði tals­kona Skechers skófram­leið­and­ans að fyr­ir­tæk­inu hafi ekki enn borist stefna Con­ver­se, og því muni fyr­ir­tækið ekki tjá sig að svo stöddu.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None