Dagur verður borgarstjóri í Reykjavík í 18 mánuði í viðbót en Einar tekur svo við

Dagur B. Eggertsson, sem setið hefur í borgarstjórn Reykjavíkur í 20 ár og verið borgarstjóri síðustu átta ár mun sitja áfram í borgarstjórastólnum út næsta ár. Þá tekur Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, við.

önnur frá blaðamannfundi í grósku.jpg
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son verður borg­ar­stjóri í Reykja­vík næstu 18 mán­uði. Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, tekur svo við emb­ætt­inu og gegnir því til loka yfir­stand­andi kjör­tíma­bils, sem lýkur vorið 2026.

Dag­ur, sem er odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur verið borg­ar­stjóri í Reykja­vík síð­ast­liðin átta ár. Dagur hefur setið í borg­­­­ar­­­­stjórn lengur en nokkur annar sem þar situr nú, eða frá árinu 2002, fyrst fyrir Reykja­vík­­­­­­­ur­list­ann en síðan fyrir Sam­­­­fylk­ing­una. Áður en hann varð borg­­­ar­­­stjóri árið 2014 hafði hann einnig verið borg­­­­ar­­­­stjóri í hund­rað daga, frá októ­ber 2007 til jan­úar 2008.

Eina skiptið á ferli Dags sem hann hefur setið í minn­i­hluta er kjör­­­­tíma­bilið 2006 til 2010, að und­an­­­­skildum áður­­­­­­­nefndum 100 dög­um, en miklar svipt­ingar voru í borg­­­­ar­­­­stjórn á þeim árum og alls fjórir meiri­hlutar mynd­að­­­­ir. Dagur var for­maður borg­ar­ráðs á árunum 2010 til 2014 þegar Sam­fylk­ingin mynd­aði meiri­hluta með Besta flokknum og Jón Gnarr var borg­ar­stjóri.

Auglýsing
Einar verður for­maður borg­ar­ráðs þangað til að hann sest í borg­ar­stjóra­stól­inn, en Dagur tekur við þeirri stöðu í byrjun árs 2024. Þór­dís Lóa Þór­hals­dótt­ir, odd­viti Við­reisn­ar, verður for­seti borg­ar­stjórn­ar. Dóra Björt Guð­jóns­dótt­ir, odd­viti Pírata, verður for­maður umhverf­is- og skipu­lags­sviðs, sem mun taka á sig fleiri verk­efni á nýju kjör­tíma­bili og meðal ann­ars fara með umhverf­is- og lofts­lags­mál.

Segir fersk­leika yfir nýja meiri­hlut­anum

Nýr meiri­hluti í borg­ar­stjórn Reykja­víkur sam­anstendur af Sam­fylk­ing­unni, Fram­sókn­ar­flokkn­um, Pírötum og Við­reisn. Hann hefur þrettán borg­ar­full­trúa af 23 og því rúman meiri­hluta.

Sam­fylk­ingin fékk flest atkvæði flokk­anna í nýja meiri­hlut­anum í kosn­ing­unum í síð­asta mán­uði, 20,3 pró­sent, og er með fimm borg­ar­full­trúa. Flokk­ur­inn tap­aði þó fylgi milli kosn­inga. Fram­sókn vann mik­inn kosn­inga­sig­ur, fékk 18,7 pró­sent atkvæða og fjóra borg­ar­full­trúa, en hafði engan áður. Píratar fengu 11,6 pró­sent atkvæða og þrjá borg­ar­full­trúa og Við­reisn 5,2 pró­sent og einn borg­ar­full­trúa. Sam­an­lagt fengu flokk­arnir fjórir því 55,8 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ing­um.

Sam­fylk­ing­in, Píratar og Við­reisn bund­ust böndum eftir kosn­ing­arnar og Vinstri græn úti­lok­uðu þátt­töku í meiri­hluta­sam­starfi eftir að hafa beðið afhroð. Því var engin önnur lausn við myndun meiri­hluta en sam­starf flokk­anna þriggja við Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Dagur sagði á blaða­manna­fundi í dag þar sem sátt­máli nýs meiri­hluta var kynntur að það væri mik­ill fersk­leiki yfir nýja meiri­hlut­an­um. Einar sagð­ist ákaf­lega ánægður með sátt­mál­ann sem end­ur­spegli kröfur Fram­sóknar í borg­inni. Hann telur sátt­mál­ann einnig svara kalli á breyt­ingar í borg­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent