Deutsche Bank keypti Icesave-kröfuna fyrir aðra

icesavenota-1.png
Auglýsing

Þýski bank­inn Deutsche Bank, sem til­kynnt var að hefði keypt Ices­a­ve-­kröfu hol­lenska seðla­bank­ans í fyrra­dag, er búinn að selja kröf­una áfram. Þetta stað­festa full­trúar Deutsche Bank og hol­lenska seðla­bank­ans í sam­tali við Kjarn­ann. Hvor­ugur bank­inn vill upp­lýsa hver end­an­legir kaup­endur eru né hversu margir þeir eru. Kjarn­inn hefur hins vegar heim­ildir fyrir því að þeir séu á fleiri en tveir og á meðal þeirra séu þekktir vog­un­ar­sjóð­ir. Kaup­verðið á eft­ir­stand­andi kröf­un­um  var 623 millj­ónir evra, um 96 millj­arðar króna. Þrotabú Lands­bank­ans var þegar búið að greiða 811 millj­ónir evra, um 125 millj­arða króna, inn á kröf­una.

Ices­a­ve-krafan, sem mynd­að­ist vegna greiðslna hol­lenskra yfir­valda á inn­stæðu­trygg­ingum vegna Ices­a­ve-­reikn­inga Lands­bank­ans, nýtur for­gangs í bú bank­ans. Ices­a­ve-­reikn­ing­arnir voru net­reikn­ingar sem bank­inn bauð upp á í Hollandi og Bret­landi sem báru mun hærri inn­láns­vexti en aðrir voru að bjóða upp á. Því flykkt­ust við­skipta­vinir til Lands­bank­ans vegna þeirra, enda ávöxtun á fé mun hærri þar en ann­ars­stað­ar. Þessi mikla aðsókn leiddi til þess að Ices­a­ve-inn­láns­söfn­unin varð að risa­vax­inni alþjóða­deilu þegar ljóst var að hinn gjald­þrota Lands­banki gat ekki greitt inn­stæðu­eig­endum eignir sínar strax eftir banka­hrun. Inn­stæðu­trygg­inga­sjóðir land­anna tveggja greiddu hluta inn­stæð­anna til baka og við það eign­uð­ust þeir kröfu á Lands­bank­ann. Það er sú krafa sem hol­lenski seðla­bank­inn seldi í vik­unni.

Nokkrir aðilar keyptu



Hol­lenski seðla­bank­inn til­kynnti að hann hefði selt kröf­una til Deutsche Bank. Það er hins vegar ekki alveg nákvæmt því bank­inn var ekki end­an­legur kaup­andi. Full­trúi hol­lenska seðla­bank­ans sem Kjarn­inn ræddi við sagði að seðla­bank­inn hefði ráðið Deutsche Bank sem milli­göngu­að­ila. Þýska bank­anum var því falið að finna aðila sem væru reiðu­búnir til að kaupa kröf­una. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans voru nokkrir aðilar sem keyptu. Hol­lenski seðla­bank­inn vill hins vegar ekki upp­lýsa um hverjir það voru né hversu margir kaup­end­urnir voru vegna trún­að­ar­sam­komu­lags sem gert var vegna kaupanna.

Nick Bone, hjá Deutsche Bank AG, tók í sama streng. Hann vildi ekki upp­lýsa um kaup­end­urna né hversu margir þeir væru. „Deutsche Bank var að vinna sem umsjón­ar­að­ili upp­boðs til að selja kröfur ákveð­inna fjár­festa í Lands­bank­anum áfram til þriðja aðila,“ segir Bone.

Auglýsing

Fámennur hópur sem kaupir íslenskar kröfur



Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að afar sér­tækur mark­aður hafi skap­ast fyrir kröfur á fall­inn íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki. Að miklu leyti séu sömu fjár­mála­fyr­ir­tækin og vog­un­ar­sjóð­irnir að kaupa kröf­urn­ar, aðal­lega aðilar sem hafa þegar mjög sterka stöðu í kröfu­hafa­hópum fall­ina íslenskra banka. Því séu mestar líkur á að kaup­end­urnir séu úr þessum hópi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None