Sigmundur Davíð snýr aftur – Sér enga ástæðu til að kjósa í haust

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að hann njóti mik­ils stuðn­ings flokks­fé­laga sinna og fjölda ann­ars fólks sem ekki tekur þátt í stjórn­mála­starfi. Það séu stað­reyndir sem liggi fyr­ir. Hann segir enga ástæðu til þess að kjósa í haust en boðar fulla þát­töku sína í stjórn­mála­bar­átt­unni. Þetta kemur fram í bréfi sem Sig­mundur Davíð sendi á alla flokks­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins. Eyjan birtir bréfið í heild sinn­i. 

Þar segir að Sig­mundur Davíð viti að end­ur­koma hans muni vekja við­brögð. „Látið það ekki slá ykkur út af lag­inu. Við­brögð, jafn­vel ofsa­fengin við­brögð gegn mér og okkur eru nú sem fyrr til marks um að and­stæð­ingar telja að sér standi ógn af okk­ur.“

Sér ekki ástæðu til þess að kjósa í haust

Sig­mundur Davíð fjallar um mik­inn árangur rík­is­stjórn­ar­innar í bréf­inu og segir að hann hafi dregið sig til hlés úr póli­tískum slag um tíma til að gefa henni svig­rúm til að vinna að mik­il­vægum og ókláruðum verk­efn­um. Í bréf­inu segir hann að með vinnu síð­ustu þriggja ára hafi rík­is­stjórnin upp­fyllt flest fyr­ir­heit sín og að landið hafi aldrei verið jafn­vel í stakk búið til að sækja fram og nú. Þá sókn vill hann að Fram­sókn leið­i. 

Auglýsing

Á öðrum stað seg­ir: „Ein­hverra hluta vegna hefur hluti sam­starfs­manna okkar í Sjálf­stæð­is­flokknum verið áhuga­samur um að flýta alþing­is­kosn­ing­um. Við höfum ætíð haldið því til haga að ef sú ætti að vera raunin þyrfti fyrst að klára þau verk­efni sem fyr­ir­heit hafa verið gefin um að leysa á þessu kjör­tíma­bili. Rík­is­stjórnin sem ekki nýtir tím­ann sem henni er veittur getur ekki gengið út frá því sem vísu að hún fái tæki­færi til að klára verk­efnin síð­ar­.[...]Eins og sakir standa eru litlar líkur á að nokkur flokkur nái meira en 30 pró­senta fylgi í næstu kosn­ingum og jafn­vel slíkt fylgi veitir ekki vissu fyrir aðild að næstu rík­is­stjórn. Aðrir munu ekki klára vinnu okkar í verð­trygg­ing­ar­mál­inu, þeir munu ekki koma á heil­brigðu fjár­mála­kerfi eins og nú er loks tæki­færi til og þeir munu ekki gera það sem þarf til að efla byggð á land­inu öllu. Tím­inn til að standa við lof­orðin sem við höfum gefið er því nún­a.“

Aðrir for­ystu­menn hafa boðað kosn­ingar

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur full­yrt opin­ber­lega að kosið verði í haust. Það hefur Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, einnig gert og flestir stjórn­mála­flokkar lands­ins eru farnir að und­ir­búa próf­kjör. Kjör­dæma­sam­band Fram­sókn­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík hefur auk þess aug­lýst eftir fram­boðum á lista flokks­ins í kom­andi alþing­is­kosn­ingum og stefnir á að röðun á lista fari fram 27. ágúst næst­kom­and­i. 

Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í apríl síð­ast­liðnum í kjöl­far Wintris-­máls­ins svo­kall­aða. Kast­ljós og Reykja­vik Media opin­ber­uðu þá að hann hefði átt aflands­fé­lag sem skráð var á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og átti m.a. kröfur á slitabú föllnu bank­anna. Hann fór í kjöl­farið í frí en snéri aftur til starfa sem þing­maður á loka­spretti þings­ins. Nú ætlar hann að hefja full störf að nýju.

Í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sem fram­kvæmd var skömmu eftur að frægur þáttur Kast­ljóss og sam­starfs­að­ila var sýnd­ur, þar sem Sig­mundur Davíð gekk út úr við­tali við sænskan fjöl­miðla­mann, kom fram að 78 pró­sent aðspurðra sögðu að dregið hefði úr trausti þeirra á Sig­mund Davíð í kjöl­far þátt­ar­ins. 

Sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­sonar mælist fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins 9,1 pró­sent. Hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2013.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None