Dómsmálaráðherra frestar frumvarpi sínu um útlendingamál til haustsins

Jón Gunnarsson hefur ákveðið að fresta frumvarpi sínu um útlendingamál til haustþings. Hann féllst ekki á þær breytingar sem þrír stjórnarandstöðuflokkar kröfðust að gerðar yrðu á málinu í upphafi vikunnar – og þeir ekki á gagntillögur hans.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Ákveðið hefur verið að fresta frek­ari umræðu um útlend­inga­mála­frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra til haust­þings, en dóms­mála­ráð­herr­ann segir við RÚV að hann hafi ákveðið að fresta frum­varp­inu til þess að liðka fyrir samn­ingum um þing­lok.

Eins og Kjarn­inn sagði frá í upp­hafi viku lögðu þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ar, Sam­fylk­ing­in, Við­reisn og Flokkur fólks­ins, fram ítar­legar breyt­ing­ar­til­lögur við frum­varp ráð­herra eftir að ráð­herra óskaði eftir því að fá efn­is­legar athuga­semdir sem liðkað gætu fyrir samn­ingum um frum­varp­ið, en sam­kvæmt frétt RÚV kom ráð­herr­ann með til­lögur á móti sem þing­flokk­arnir þrír sættu sig ekki við.

Sig­mar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar sagði undir liðnum störf þings­ins á Alþingi fyrir hádegi að rík­is­stjórnin hefði slegið á útrétta sátt­ar­hönd stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna þriggja í mál­inu.

Til­lögur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna voru lagðar fram í kjöl­far þess að Jón leit­aði eftir sam­tali við and­­stöð­u­­flokka á þingi um að koma frum­varp­inu í gegn og ná þannig sam­komu­lagi um þing­lok, en útlend­inga­frum­varp ráð­herr­ans hefur verið einn helsti þrösk­uld­ur­inn fyrir því að samn­ingar náist um þing­lok­in, sem hafa verið áætluð sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins á morg­un.

Frum­varp Jóns er einnig umdeilt innan þing­liðs rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, en þing­flokkur Vinstri grænna afgreiddi það með fyr­ir­vara og eins og fram kom í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans um til­lögur stjórn­ar­and­stöð­unnar á dög­unum nefndu við­mæl­endur að það hefði meðal ann­ars verið þrýst­ingur á Jón innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks um að breyta frum­varp­inu þannig að það næði í gegn.

Auglýsing

Á mánu­dag lágu fyrir þær til­­lögur sem Sam­­fylk­ing­in, Við­reisn og Flokkur fólks­ins sögðu að Jón þyrfti að taka til­­lit til ef það ætti að verða hægt að koma frum­varp­inu í gegn og ljúka þing­­störf­­um. Píratar stóðu ekki að þeim til­­lög­um, sökum þess að þeir voru ein­fald­­lega á móti þeirri aðferða­fræði að semja við Jón Gunn­­ar­s­­son dóms­­mála­ráð­herra um nið­­ur­­stöðu máls­ins.

Breyt­inga­til­lögur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna voru í sex liðum og vildu flokk­arnir einnig fá til­lögur sínar og Pírata, sem vörð­uðu þann hóp flótta­fólks sem hefur ílengst hér vegna COVID-19 tak­markana, felldar inn í frum­varp­ið.

Þær til­­lög­­ur, sem settar voru fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í upp­hafi mán­að­ar­ins, fólu í sér að sá dráttur sem orðið hefur á brott­­flutn­ingi fólks­ins, sem kom til vegna heims­far­ald­­urs, verði ekki sagður á ábyrgð umsækj­enda sjálfra. Þannig njóti þeir sömu rétt­inda og aðrir í sömu stöðu, þannig að þeir flótta­­menn sem hafa dvalið hér í 12 og 18 mán­uði eftir að nið­­ur­­staða er komin í mál þeirra fái hér ann­­ars vegar efn­is­­með­­­ferð og hins vegar dval­­ar­­leyfi á grund­velli mann­úð­­ar­­sjón­­ar­miða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent