Dómsmálaráðherra: Tryggt að ekki verði rof á þjónustu við hælisleitendur

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að tilkynnt verði í þessari viku eða næstu hvernig fyrirkomulag á lögbundinni talsmannaþjónustu við hælisleitendur verði háttað. Ráðuneytið ákvað að endurnýja ekki samning við Rauða krossinn um þjónustuna.

Jón Gunnarsson og Helga Vala Helgadóttir
Jón Gunnarsson og Helga Vala Helgadóttir
Auglýsing

„Rík­is­stjórn sem talar stöðugt um skil­virkni og mun minna um mildi og mannúð ætlar nú að setja mála­flokk­inn í algjört upp­nám, enda fáir lög­menn sem hafa við­líka þekk­ingu og þeir lög­fræð­ingar sem alfarið hafa helgað sig mála­flokknum síð­ustu ár.“

Þetta sagði Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag þar sem hún gerði mál­efni fólks á flótta að umræðu­efni. Vakti hún athygli á því að dóms­mála­ráðu­neytið hefði ákveðið að end­ur­nýja ekki þjón­ustu­samn­ing við Rauða kross Íslands sem sinnt hefur tals­manna­þjón­ustu fyrir þá sem til Íslands leita að vernd. Samn­ing­ur­inn rennur út í lok apríl og hafa for­svars­menn Rauða kross­ins lýst yfir áhyggjum sín­um, m.a. í við­tali við Kjarn­ann, um að rof verði á þjón­ustu við þann við­kvæma hóp sem umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sé.

„Fyrir liggur að máls­með­ferð­ar­tími hefur styst eftir að Rauði kross­inn tók við verk­efn­inu, en það hefur einmitt verið aðal­mark­mið stjórn­valda í mála­flokkn­um,“ sagði Helga Vala. „Hjá Rauða kross­inum hefur mynd­ast mikil þekk­ing og góð yfir­sýn sem hefur gagn­ast íslenskum stjórn­völd­um.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði það rétt að ákveðið hefði verið að end­ur­nýja ekki samn­ing­inn við Rauða kross­inn. Samn­ing­ur­inn taki til bæði félags­þjón­ustu og tals­manna­þjón­ustu og „þær breyt­ingar urðu um ára­mót að félags­þjón­ustan fær­ist yfir í annað ráðu­neyt­i“.

Auglýsing

Við tíma­mót þar sem hlut­verk ráðu­neytis tekur miklum breyt­ingum væri ástæða til að end­ur­skoða það hvernig staðið verður að mála­flokkn­um. „Það er auð­vitað rang­lega sagt hér að eitt­hvert upp­nám sé í þessum mála­flokki. Við munum vænt­an­lega til­kynna það í þess­ari viku, eða í næstu viku í síð­asta lagi, hvernig staðið verður að þessum málum í fram­tíð­inni. Við munum tryggja að sú lög­bundna þjón­usta sem ráðu­neytið á að veita verði til staðar og það verði ekk­ert rof á henni gagn­vart þeim sem hingað kom­a.“ Hann sagði í við­tali nýverið að ekki væri víst að þjón­ustan yrði boðin út heldur gæti farið svo að verk­efn­unum yrði deilt til sjálf­stæðra lög­manna eða lög­manns­stofa.

Jón sagði það rétt að málm­eð­ferð­ar­tím­inn hefði styst en að það væri fyrst og fremst út af breyttum vinnu­reglum ráðu­neyt­is­ins við vinnslu umsókna um rík­is­borg­ara­rétt á Íslandi. „Þess vegna meðal ann­ars hefur máls­með­ferð­ar­tími styst.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent