Efnahagslegar refsiaðgerðir ekki beitt vopn

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ segir að refsiaðgerðir vestrænna ríkja muni sennilega ekki hafa mikil áhrif á stefnu ráðamanna í Rússlandi einar og sér. Þegar fram líða stundir muni Rússar geta aðlagast aðgerðunum og fundið sér nýja markaði.

Rússar héldu sýningu á herföngum sínum í St. Pétursborg í síðustu viku, í aðdraganda heræfingarinnar.
Auglýsing

Refsi­að­gerðir gegn Rúss­landi vegna inn­rás­ar­innar í Úkra­ínu munu senni­lega skipta litlu máli fyrir gang stríðs­ins, þar sem venju­lega dregur úr biti slíkra aðgerða ef þeim er beitt lengi. Þetta segir Sig­urður Jóhann­es­son, for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Sam­kvæmt Sig­urði hefur æ oftar verið gripið til við­skipta­þving­ana á síð­ustu eftir lok seinni heims­styrj­ald­ar­inn­ar, enda séu efna­hags­legar refsi­að­gerðir oft ákjós­an­legri en hern­aður í huga flestra. Fyrst um sinn stund­uðu einkum Banda­ríkja­menn slíkar aðgerðir gegn öðrum þjóð­um, en þegar leið að alda­mótum voru Sam­ein­uðu þjóð­irnar og Evr­ópu­sam­bandið einnig farin að beita þeim.

Sig­urður bendir líka á sam­an­tekt um 200 refsi­að­gerðir sem var beitt á síð­ustu öld, en sam­kvæmt honum hafði meiri­hluti þeirra engin áhrif á stefnu landa sem þær bein­ast gegn. Árang­ur­inn væri þeim mun minni sem meira væri í húfi, en þegar aðgerðum er beint að stríðs­rekstri voru ein­ungis 20 pró­sent líkur á að þær hefðu áhrif.

Auglýsing

Einnig bendir Sig­urður á að mesti kraft­ur­inn fari jafnan úr refsi­að­gerðum eftir eitt til tvö ár. Þá hafi löndin sem refsað er oft­ast fundið nýja við­skipta­vini í stað þeirra sem standa fyrir aðgerð­un­um.

„Vest­ræn ríki grípa núna til víð­tæk­ari refs­inga en áður,“ segir Sig­urð­ur. „ Þær valda meiri óþæg­indum fyrst um sinn, en óþæg­indin minnka með tím­anum og Rússar munu senni­lega þola þau,“ bætir hann við.

Sam­kvæmt honum dregur það úr biti aðgerð­anna að fjöl­margar þjóðir taka ekki þátt í þeim, og því geti Rússar fundið sé nýja mark­aði. Ekki virð­ist hafa komið til tals að Mið-­Evr­ópu­þjóðir hætti að kaupa olíu og gas af Rússum og því muni núver­andi refsi­að­gerðir vest­rænna ríkja senni­lega ekki hafa mikil áhrif á stefnu ráða­manna í Rúss­landi.

Hægt er að lesa grein Sig­urðar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent