Eignir maka ná ekki til hagsmunaskráningar borgarfulltrúa

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík leitaði til skrifstofu borgarstjórnar hvort henni bæri að skrá hlut eiginmanns síns í félögum sem fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa. Skrifstofan mat að ekki væri þörf á því.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fékk þær upplýsingar frá skrifstofu borgarstjórnar að hún þurfi ekki að skrá hluti eiginmanns síns í félögum sem fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fékk þær upplýsingar frá skrifstofu borgarstjórnar að hún þurfi ekki að skrá hluti eiginmanns síns í félögum sem fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa.
Auglýsing

Hags­muna­skrán­ing borg­ar­full­trúa á fjár­hags­legum hags­munum ná ekki til eign­ar­hluta í félögum sem skráðir eru á maka. Þetta er mat skrif­stofu borg­ar­stjórn­ar. Hildur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, leit­aði ráð­gjafar hjá skrif­stof­unni þess efnis hvort henni bæri að skrá hlut eig­in­manns síns í félög­um. Nið­ur­staðan var að svo er ekki.

Upp­færð hags­mun­ar­skrán­ing Hildar hefur nú verið birt á vef Reykja­vík­ur­borgar og snýr breyt­ingin að því að hún hefur sagt sig úr stjórn Orku­veitu Reykja­víkur (OR) og tekið sæti í stjórn Faxa­flóa­hafna. Með því að færa sig milli stjórna vill Hildur koma í veg fyrir mögu­lega hags­muna­á­rekstra sem gætu tengst kjöri eig­in­manns henn­ar, Jóns Skafta­son­ar, í stjórn Sýn­ar.

Auglýsing

Jón var kjör­inn í stjórn Sýnar 31. ágúst síð­­ast­lið­inn á hlut­hafa­fundi sem var boð­aður af kröfu félags­­ins Gavia Invest, sem keypti í sumar rúm­­lega 16 pró­­senta hlut í Sýn, að mestu af félagi í eigu Heið­­ars Guð­jóns­­son­­ar, sem lét af störfum sem for­­stjóri Sýnar í lok júlí, sem átti 12,72 pró­­senta hlut.

Ga­via Invest er nýstofnað fjár­­­­­­­fest­inga­­­­fé­lag sem Jón er í for­svari fyr­­­­ir. Gavia Invest er í eigu þriggja félaga, Capi­­­­tal ehf., E&S 101 ehf. og AB 891 ehf. Eig­endur þess­­­­­ara félaga eru, auk Jóns, Reynir Grét­­­­­ar­s­­­­­son, Hákon Stef­áns­­­­­son, Jon­­at­han R. Rubini, Andri Gunn­­­­­ar­s­­­­­son og Mark Kroloff.

Hildur sagði í sam­tali við Kjarn­ann í gær að hún væri að vinna í því að upp­færa upp­lýs­ingar um fjár­hags­lega hags­muni í hags­muna­skrán­ingu borg­ar­full­trúa í sam­starfi við skrif­stofu borg­ar­stjóra. Hún hafi þurft að leita ráð­gjafar með nokkur smá­at­riði.

Bjarni Þór­odds­son, verk­efna­stjóri og stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra, segir í sam­tali við Kjarn­ann að spurn­ing Hildar hafi snúið að því hvort hún ætti að skrá hlut eig­in­manns síns í félög­um. Skiln­ingur skrif­stofu borg­ar­stjórnar á reglum um hags­muna­skrán­ingu hafi verið að ekki ætti að skrá það.

Í reglum um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar, sem sam­þykktar voru í mars 2020, er hvergi minnst á skrán­ingu fjár­hags­legra hags­muna sem snúa að eignum eða stjórn­ar­setu maka. Regl­unum er ætlað að veita almenn­ingi upp­­lýs­ingar um fjár­­hags­­lega hags­muni borg­­ar­­full­­trúa og vara­­borg­­ar­­full­­trúa hjá Reykja­vík­­­ur­­borg og trún­­að­­ar­­störf þeirra utan borg­­ar­­stjórn­­­ar. Regl­­urnar eiga þannig að auka gagn­­sæi í störfum borg­­ar­­stjórn­­­ar.

Hildur segir að það sé hins vegar ekk­ert leynd­ar­mál að eig­in­maður hennar eigi hlut í félag­inu Gavia Invest, líkt og fjallað hefur verið um í fjöl­miðl­um. „Það er svo sífellt verk­efni stjórn­mála­manna að gæta að hæfi sínu, hvort sem er almennt eða við afgreiðslu ein­stakra mála.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent