Hildur „þurfti að leita ráðgjafar með nokkur smáatriði“ vegna hagsmunaskráningar

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn vinnur að uppfærslu á hagsmunaskráningu sem borgarfulltrúi. Hún sagði sig nýverið úr stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að koma í veg fyrir mögulega hagsmunaárekstra þar sem eiginmaður hennar situr í stjórn Sýnar.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Auglýsing

Hildur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, vinnur að því að upp­færa hags­muna­skrán­ingu sína sem borg­ar­full­trúi í sam­starfi við skrif­stofu borg­ar­stjórn­ar. Hún seg­ist í sam­tali við Kjarn­ann hafa þurft að „leita ráð­gjafar með nokkur smá­at­rið­i.“

Hildur sagði sig nýverið úr stjórn Orku­veitu Reykja­víkur (OR) og færði sig yfir í stjórn Faxa­flóa­hafna. Í sam­tali við mbl.is sagði hún að það hafi lengi staðið til að hún myndi færa sig úr stjórn OR í stjórn Faxa­flóa­hafna á nýju kjör­tíma­bili en að hún hafi látið verða af því nú til að koma í veg fyrir mögu­lega hags­muna­á­rekstra sem gætu tengst kjöri eig­in­manns henn­ar, Jóns Skafta­son­ar, í stjórn Sýn­ar, sem er stór leik­andi á fjöl­miðla­mark­aði.

Í upp­hafi vik­unnar var greint frá því að Sýn og Ljós­leið­ar­inn ehf., fjar­skipta­fyr­ir­tæki í eigu Orku­veit­unnar sem hefur verið í sam­keppni við Sýn, hafi gert samn­ing um kaup á stofn­n­eti Sýn­ar. Kaup­verðið er þrír millj­arðar króna. Auk þess gerðu fyr­ir­tækin þjón­ustu­samn­ing til tíu ára.

Auglýsing

Jón var kjör­inn í stjórn Sýnar 31. ágúst síð­ast­lið­inn á hlut­hafa­fundi sem var boð­aður af kröfu félags­ins Gavia Invest, sem keypti í sumar rúm­lega 16 pró­senta hlut í Sýn, að mestu af félagi í eigu Heið­ars Guð­jóns­son­ar, sem lét af störfum sem for­stjóri Sýnar í lok júlí, sem átti 12,72 pró­senta hlut.

Ga­via Invest er nýstofnað fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lag sem Jón er í for­svari fyr­­­ir. Gavia Invest er í eigu þriggja félaga, Capi­­­tal ehf., E&S 101 ehf. og AB 891 ehf. Eig­endur þess­­­­ara félaga eru, auk Jóns, Reynir Grét­­­­ar­s­­­­son, Hákon Stef­áns­­­­son, Jon­­at­han R. Rubini, Andri Gunn­­­­ar­s­­­­son og Mark Kroloff.

Jón hefur á umliðnum árum verið náin sam­­­starfs­­­maður hjón­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­­­sonar Ing­i­­­bjargar Pálma­dóttur og var fram­­­kvæmda­­­stjóri fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Strengs og fjár­­­­­fest­inga hjá 365 þangað til fyrr á þessu ári. Hildur og Jón hafa verið saman um ára­bil en gengu í hjóna­band í lok síð­asta árs.

Borg­ar­full­trúum ber ekki skylda til að skrá fjár­hags­lega hags­muni

Hildur segir í sam­tali við Kjarn­ann að hún sé að vinna að því að upp­færa upp­lýs­ingar um fjár­hags­lega hags­muni í hags­muna­skrán­ingu borg­ar­full­trúa í sam­starfi við skrif­stofu borg­ar­stjóra. Skrán­ingin hafi ekki verið upp­færð þar sem hún hafi þurft að leita ráð­gjafar með nokkur smá­at­riði.

Hún bendir jafn­framt á að sam­kvæmt reglum um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar, sem borg­ar­stjórn sam­þykkti í mars 2020, ber borg­ar­full­trúum og vara­borg­ar­full­trúum ekki skylda til að skrá­setja fjár­hags­lega hags­muni heldur er það val­kvætt.

Eiga að skrá hags­muni innan mán­aðar frá því að borg­ar­stjórn kemur saman eftir kosn­ingar

Til­gangur regln­anna er að veita almenn­ingi upp­lýs­ingar um fjár­hags­lega hags­muni borg­ar­full­trúa og vara­borg­ar­full­trúa hjá Reykja­vík­ur­borg og trún­að­ar­störf þeirra utan borg­ar­stjórn­ar. Regl­urnar eiga þannig að auka gagn­sæi í störfum borg­ar­stjórn­ar.

Í regl­unum segir að þeir borg­ar­full­trúar og vara­borg­ar­full­trúar sem kjósa að skrá hags­muni sína í sam­ræmi við regl­urnar skuli gera það innan mán­aðar frá því að borg­ar­stjórn kemur saman eftir kosn­ingar með því að gera opin­ber­lega grein fyrir fjár­hags­legum hags­munum sínum og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórn­ar. Fyrsti fundur borg­ar­stjórnar eftir kosn­ing­arnar í vor var 7. júní, fyrir þremur mán­uð­um.

Upp­fært klukkan 11:45: Hildur áréttar í sam­tali við Kjarn­ann að ekki hafi verið til­efni til að upp­færa hags­muna­skrán­ingu hennar eftir kosn­ingar fyrr en hún færði sig úr stjórn Orku­veit­unnar í stjórn Faxa­flóa­hafna. Það hefur nú verið gert.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent