Það eru kannski ekki svo margir sem kannast við nafn Tracy Britt Cool, 29 ára gamallar aðstoðarkonu Warren Buffett. En þó hefur það breyst mikið eftir að Buffett sjálfur hrósaði henni í hástert á aðalfundi félagsins sem hann hefur stýrt frá árinu 1960, Berkshire Hathaway, og sagði hana vera miklu áhrifameiri í fjárfestinugum félagsins heldur en hann sjálfan.
Þrátt fyrir að vera ung að árum þá hefur Cool getið sér gott orð sem greinandi og ráðgjafi. Buffett hefur líka treyst henni mörgum áhrifamiklum stöðum þegar kemur að eignasafni Berkshire Hathaway. Þannig er hún í stjórn matvælafyrirtækisins Heinz og stjórnarformaður fyrirtækjanna Benjamin Moore og Oriental Trading.
Samkvæmt lista Forbes, er hún á meðal 30 einstaklinga undir þrítugu, sem hvað líklegast er að muni láta til sín kveða í framtíðinni.