Slitastjórn Landsbankans framlengir frest um viku

lais2-1.jpg
Auglýsing

 

Slita­stjórn þrota­bús Lands­bank­ans hefur fram­lengt loka­dag­setn­ingu á frá­gangi sam­komu­lags milli sín og nýja Lands­bank­ans um leng­ingu á greiðslum af skulda­bréfi upp á þriðja hund­rað millj­arð króna sem nýi bank­inn skuldar þrota­bú­inu. Loka­frestur til að ganga frá sam­komu­lag­inu átti að vera í dag, en hefur nú verið frestað um viku, fram til 31. októ­ber 2014. Vænt­ingar kröfu­hafa Lands­bank­ans stóðu til þess að Seðla­banki Íslands og stjórn­völd myndu gefa svar í dag um hvort und­an­þága feng­ist frá fjár­magns­höftum til að ganga frá sam­komu­lag­inu. Það gekk ekki eft­ir.

Á heima­síðu sinni seg­ist slita­stjórnin enn bíða þessa að Seðla­banki Íslands og fjár­mála­ráðu­neytið leggi fyrir sig til­lögur um skil­yrði sem þrotabú Lands­bank­ans þurfi að mæta til að und­an­þág­urnar verði veitt­ar. Kjarn­inn hefur heim­ildir fyrir því að unnið sé stíft að und­ir­bún­ingi fyrstu skrefa í átt að losun hafta þessa dag­anna. Sú vinna mun halda áfram yfir helg­ina. Heim­ildir Kjarn­ans herma að ekki sé fyrir hendi full póli­tísk sátt innan rík­is­stjórn­ar­innar um hvaða leiðir eigi að fara.

Auglýsing

Kjarn­inn fjall­aði um málið í frétta­skýr­ingu í fyrra­dag.

Sig­mundur Davíð hefur lýst and­stöðu sinni



Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra lýsti yfir and­stöðu við leng­ingu á gjald­dögum skulda­bréfa Lands­bank­ans í ræðu á Alþingi í maí síð­ast­liðn­um. Þar sagði hann meðal ann­ars: Það að lengja í þessu bréfi og það á hærri vöxtum er hins vegar ekk­ert aug­ljós­lega góður kost­ur. Þegar ein­hver skuldar eitt­hvað sem hann getur ekki borgað leysir það ekki öll mál að hækka vext­ina og láta þá tikka í lengri tíma.

Það sem snýr hins vegar að stjórn­völdum í þessu máli er hvort for­svar­an­legt sé að veita und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höft­unum bara fyrir þessa aðila á meðan aðrir verða áfram lok­aðir hér innan hafta. Það getur ekki verið for­svar­an­legt að veita und­an­þágu fyrir einn eða tvo til­tekna aðila til þess að sleppa út með gjald­eyri, jafn­vel nið­ur­greiddan gjald­eyri, gjald­eyri sem yrði þá nið­ur­greiddur af þeim sem eftir sætu í höftum og þar með talið íslenskum almenn­ingi, hugs­an­lega með var­an­legri skerð­ingu á raun­gengi krón­unnar sem þýðir ein­fald­lega lak­ari lífs­kjör í land­inu til fram­tíð­ar. Slík nið­ur­staða væri alltaf óásætt­an­leg og þar af leið­andi gætu stjórn­völd ekki heim­ilað und­an­þágu frá höft­unum sem leiddi til slíks.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None