Ekki er vitað hverrar þjóðar 142 þúsund þeirra ferðamanna sem heimsóttu Íslands á árinu 2014 eru. Það þýðir að sjöundi hver erlendur ferðamaður sem fer í gegnum vopnaleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er flokkaður í flokkinn „Aðrir“ þar sem ekki er gert ráð fyrir þjóðerni þeirra í talningunni. Þetta kemur fram í frétt á túristi.is.
Þar segir að allir farþegar séu látnir sýna vegabréf við vopnaleit á flugstöðinni. Sú talning er framkvæmd að undirlagi Ferðamálastofu sem heldur utan um opinberar upplýsingar um fjölda erlendra og íslenskra flugfarþegar sem fara um Keflavíkuflugvöll.
Sem stendur er hægt að flokka erlendu farþeganna (þeir sem millilenda eru ekki taldir með) eftir 17 mismundi þjóðernum. Sjöundi hver útlendingur sem kemur til landsins er ekki hluti af þeim þjóðum sem flokkunin býður upp á og lendir því í flokknum „Aðrir“. Á árinu 2014 flugu 969 erlendir ferðamenn um Keflavíkurflugvöll og þar af lentu 142 þúsund í þessum óskilgreinda þjóðernishóp.
Óskilgreindum fjölgar hraðar en öðrum
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2015 hafa 28 þúsund erlendir ferðamenn lent í óskilgreinda hópnum. Það er um helmingi fleiri en lentu í þeim flokki á fyrstu þremur mánuðum ársins í fyrra. Ferðamenn eru 31 prósent fleiri á fyrsta ársfjórðungi ársins í ár en þeir voru á sama tímabili árið 2014.
Ferðamönnum frá óskilgreindum löndum fjölgar því hraðar en sem nemur hlutfallslegri heildarfjölgun þeirra sem heimsækja landið. Á Túrista.is er bent á að á lista yfir þjóðir sem eru sérstaklega taldar í dag eru aðeins tvö Asíulönd en ekkert land frá S-Ameríku, Afríku eða Eyjaálfu. Einnig vantar Evrópuþjóðir eins og Belgíu og Austurríki og einu fulltrúar Austur-Evrópu á listanum eru Pólland og Rússland.
Flugfélögin halda líklega hvert fyrir sig utan um upplýsingar um þjóðerni sinna farþega en þær upplýsingar eru ekki opinberar öfugt við talningu Ferðamálastofu.
Búið að óska eftir breytingum, ótti við raðir
Í frétt Túrista.is er rætt við Ólöfu Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra um málið. Hún segir að Ferðamálastofa hafi fyrir nokkru síðan óskað eftir því við Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll, að ráðist verði í aðgerðir til að fjölga þjóðunum í talningunni. „Þrátt fyrir ítrekanir höfum við ekki fengið endanleg svör frá þeim um það með hvaða hætti þetta getur orðið, hver kostnaðurinn yrði eða hvenær unnt verði að ráðast í þessar breytingar."
Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, segir í samtali við síðuna að ef listinn yfir þjóðerni yrði stækkaður þá gæti það lengt raðir. „Auk þess aukast skekkjumörk í talningunni eftir því sem þjóðlöndum fjölgar á listanum. En við erum með verkefni í gangi þar sem við erum að kanna alla möguleika og reynum eftir fremsta megni að finna lausn sem er áreiðanleg og verður ekki til þess að auka raðir."