Færri atvinnulausir en fleiri fastir í langtímaatvinnuleysi

Í febrúar 2020, þegar atvinnulífið var enn að glíma við afleiðingar af gjaldþroti WOW air og loðnubrest, voru 21 prósent allra atvinnulausra flokkaðir langtímaatvinnulausir. Nú er það hlutfall 38 prósent.

Flest þeirra starfa sem orðið hafa til síðustu mánuði eru í ferðaþjónustu.
Flest þeirra starfa sem orðið hafa til síðustu mánuði eru í ferðaþjónustu.
Auglýsing

Í lok síð­asta mán­aðar voru 6.279 manns atvinnu­lausir á Íslandi. Það eru 2.883 færri en voru skráðir á atvinnu­leys­is­skrá í febr­úar 2020, í síð­asta mán­uð­inum áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Hlut­falls­lega var atvinnu­leysið þá fimm pró­sent en er í dag 3,2 pró­sent. Á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð mæld­ist atvinnu­leysið mest í jan­úar 2021, 11,6 pró­­sent, og heild­­ar­at­vinn­u­­leysi að með­­­töldum þeim sem enn voru á hluta­bótum í þeim mán­uði var 12,8 pró­­sent.

Það þýddi að alls 26.403 voru annað hvort atvinnu­lausir að öllu leyti eða í minnk­uðu starfs­hlut­falli á þeim tíma, eða rúm­lega 20 þús­und fleiri en um síð­ustu mán­aða­mót. 

Atvinnu­leysið hefur því, sam­an­dreg­ið, skroppið gríð­ar­lega saman á síð­ustu mán­uðum sam­hliða því að tak­mörk­unum sem settar voru á vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var aflétt. Hlut­falls­lega hefur það ekki verið lægra síðan í apríl 2019. 

Fjöldi lang­tíma­at­vinnu­lausra mun meiri

Það segir þó ekki alla sög­una. Í síð­ustu mán­aða­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar kemur fram að 2.387 manns hefðu verið atvinnu­lausir í meira en tólf mán­uði í lok júlí. Það eru mun fleiri en glímdu við slíkt atvinnu­leysi fyrir far­ald­ur­inn. Í febr­úar 2020, þegar atvinnu­leysi var hlut­falls­lega meira en það er núna, höfðu 1.893 verið án atvinnu í ár eða leng­ur. 

Auglýsing
Fjöldi lang­tíma­at­vinnu­lausra er því 26 pró­sent meiri nú en hann var þá, í minna atvinnu­leysi. Í febr­úar 2020, þegar atvinnu­lífið var enn að glíma við afleið­ingar af gjald­þroti WOW air og loðnu­brest, voru 21 pró­sent allra atvinnu­lausra flokk­aðir lang­tíma­at­vinnu­lausir en nú er það hlut­fall 38 pró­sent. 

Svipuð staða hjá erlendum rík­is­borg­urum

Atvinnu­leysi  hjá erlendum rík­is­borg­urum nú er á svip­uðum stað og fyrir far­ald­ur­inn ef horft er á það hlut­falls­lega. Um síð­ustu mán­aða­mót mæld­ist það 7,3 pró­sent hjá erlendum atvinnu­leit­endum á sama tíma og atvinnu­leysi heilt yfir mæld­ist, líkt og áður sagði, 3,2 pró­sent.  Það þýðir að 2.842 erlendir atvinnu­leit­endur voru án atvinnu í lok júlí, sem gerir þá að 43 pró­sent allra atvinnu­lausra. Það er sama hlut­fall atvinnu­lausra og erlendir atvinnu­leit­endur voru í febr­úar 2020.  

Alls bjuggu 59.490 erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi um mitt þetta ár. Þeir eru 15,6 pró­sent allra íbúa. Því liggur fyrir að atvinnu­leysi er mun meira á meðal þeirra en íslenskra rík­is­borg­ara. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent