Færri íbúðir á hvern fullorðinn einstakling

Íbúðum á hvern fullorðinn einstakling hefur fækkað stöðugt á síðustu 14 árum. Nú eru þær 8 prósent færri en þær voru árið 2007.

Fjölgun íbúða hefur ekki haldist í við fjölgun fullorðinna hér á landi síðustu árin.
Fjölgun íbúða hefur ekki haldist í við fjölgun fullorðinna hér á landi síðustu árin.
Auglýsing

Fjöldi full­bú­inna íbúða hefur fækkað á hvern full­orð­inn ein­stak­ling á síð­ustu árum og er hann nú 8 pró­sentum minni en hann var fyrir 14 árum síð­an. Þetta kemur fram þegar tölur úr fast­eigna­gátt Þjóð­skrár eru bornar saman við mann­fjölda­tölur Hag­stofu.

Líkt og sjá má á mynd hér að neðan voru rúm­lega 59 íbúðir á hverja 100 íbúa sem voru eldri en 20 ára árið 2007. Ef frá er talin fjölgun á milli áranna 2009 og 2010 hefur þeim fækkað stöðugt síðan þá. Nú eru til tæp­lega 55 íbúðir á hverja 100 full­orðna, en það er um 8 pró­sentum minna en á árunum fyrir hrun.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa og Þjóðskrá

Skortur ólík­legur að mati Lands­bank­ans

Sam­kvæmt Hag­spá Lands­bank­ans, sem kom út á mið­viku­dag­inn í síð­ustu viku, hefur fjöldi íbúða á hvern íbúa fjölgað tölu­vert hér á landi, sam­hliða mik­illi aukn­ingu nýbygg­inga á síð­ustu árum. Þetta hlut­fall er nú svipað því sem var árin 2008 og 2016, en nokkuð hærra á tíma­bil­inu 2017-2019.

Hag­deild Lands­bank­ans bætir við að hægt hafi nú á mann­fjölgun vegna minni fjölg­unar aðfluttra umfram brott­fluttra til lands­ins og telur því að ólík­legt sé að skortur ríki á hús­næði um þessar mundir.

Auglýsing

Líkt og Kjarn­inn hefur fjallað um hefur fjöldi ófull­bú­inna íbúða dreg­ist sam­an, en hann var fjórð­ungi minni í síð­ustu viku miðað við þar­síð­ustu ára­mót.

Þessi þróun er í sam­ræmi við álykt­­anir í nýlegri skýrslu Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­unar (HMS) um stöðu og þróun mála á íbúða­­mark­aði í ár. Þar var búist við miklum sam­drætti á bygg­ing­­ar­­mark­aði, en sam­­kvæmt stofn­un­inni er hætt við að fram­­boð nýrra eigna drag­ist saman á næstu árum vegna þess. Verði þessi sam­­dráttur við­var­andi býst HMS við að óupp­­­fyllt íbúða­þörf muni aukast á næst­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent