Fasteignahluti Þjóðskrár færður til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Öll verkefni tengd fasteignaskrá og fasteignamati verða flutt frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Engar uppsagnir fylgja þessari uppstokkun, samkvæmt tilkynningu innviðaráðuneytisins.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Auglýsing

Öll verk­efni tengd fast­eigna­skrá og fast­eigna­mati verða flutt frá Þjóð­skrá Íslands til Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un­ar. Frá þessu er sagt í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins, en mark­miðið er sagt að það að „ein­falda og efla þjón­ustu við fólk og fyr­ir­tæki á sviði hús­næð­is­mála og tryggja enn frek­ari sam­hæf­ingu milli rík­is­stofn­ana og sveit­ar­fé­laga“.

Þjóð­skrá Íslands mun eftir þessa breyt­ingar ekki hafa neitt að gera með utan­um­hald um skrán­ingu fast­eigna, en mun hins vegar sam­kvæmt til­kynn­ingu inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins „áfram veita öfl­uga þjón­ustu við skrán­ingu ein­stak­linga.“ Hjá Þjóð­skrá starfa um 100 manns í dag, en um helm­ingur þeirra mun fær­ast í ný störf hjá Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un.

„Engar upp­sagnir verða í tengslum við þessi umskipti og starfs­stöðvar utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins áfram starf­rækt­ar,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Þessar breyt­ingar voru kynntar á fundum innan beggja stofn­ana í dag og til stendur að vinna að þeim í nánu sam­starfi stofn­an­anna tveggja og búið er að skipa sér­stakan stýri­hóp til þess verks. Sig­urður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra mun leggja fram frum­varp á vor­þingi um breyt­ingar á lögum sem tengj­ast þessum breyt­ingum og þá munu breyt­ing­arnar form­lega taka gildi.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins munu öll verk­efni sem nú heyra undir Fast­eigna­svið Þjóð­skrár, þ.e. fast­eigna­skrá, fast­eigna­mat og útreikn­ingur á álagn­ingu sveit­ar­fé­laga, flytj­ast yfir til HMS og sam­ein­ast starf­semi tengdri mann­virkja­skrá.

Ýmis verk­efni á stoð­þjón­ustu­sviðum Þjóð­skrár fær­ast einnig yfir, s.s. á sviði hug­bún­að­ar­þró­un­ar, rekst­urs, gagna og sér­vinnslu, þjón­ustu og eða sölu, sem snýr að fast­eigna­skrá og tengdum skrám.

Einn staður fyrir erindi tengd fast­eignum og hús­næð­is­málum

Í til­kynn­ingu er haft eftir Sig­urði Inga Jóhanns­syni inn­við­a­ráð­herra að með því að færa fast­eigna­skrána til HMS geti „fólk nú leitað á einn stað með erindi tengd fasteigum og hús­næð­is­mál­u­m.“

Auglýsing

„Með þessum breyt­ingum er stigið stórt skref til að sam­hæfa og ein­falda þjón­ustu á vegum hins opin­bera á sviði hús­næð­is­mála. Til­gang­ur­inn er að auka yfir­sýn til að gera stjórn­völdum kleift að gera mark­viss­ari aðgerðir til að ná jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði. Þjóð­skrá Íslands gegnir mik­il­vægu hlut­verki eftir breyt­ing­arnar og þar starfar öfl­ugt fag­fólk, sem mun taka þátt í að efla enn frekar þjón­ustu á vegum stofn­un­ar­inn­ar,“ er haft eftir Sig­urði Inga í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Her­mann Jón­as­son for­stjóri HMS segir „skýr sókn­ar­færi til að bæta þjón­ustu á þessu mik­il­væga sviði“ og Aðal­steinn Þor­steins­son, starf­andi for­stjóri Þjóð­skrár, segir breyt­ingar veita Þjóð­skrá tæki­færi til að skil­greina hlut­verk sitt með skýrum hætti með skýr­ari skilum á milli stofn­ana, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent