Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttur ráðherra ferðamála hefur tekið ákvörðun um að fresta fyrsta gjalddaga hérlendra ferðaskrifstofa, vegna lána sem þær hafa fengið úr Ferðaábygðarsjóði, um eitt ár.
Því munu ferðaskrifstofur, sem fengu lánaða alls 3,2 milljarða frá ríkinu í fyrra til þess að endurgreiða ferðamönnum vegna ferða sem ekki voru farnar eða afpantaðar, ekki byrja að greiða af lánunum fyrr en 1. desember árið 2022.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. Þar segir einnig að til skoðunar sé hjá ráðuneytinu að lengja lánstíma lánanna sem ferðaskrifstofurnar fengu frá ferðaábyrgðarsjóðnum.
Ferðaábyrgðasjóði var komið á fót síðasta sumar til þess að veita ferðaskrifstofum lán til þess að endurgreiða ferðamönnum vegna ferða sem var aflýst eða þær afpantaðar á tímabilinu 12. mars til 31. júlí í fyrra, þegar fyrsta bylgja kórónuveirufaraldursins setti ferðalög á milli landa úr skorðum.
Gætu einungis greitt af lánum í undantekningartilfellum
Í tilkynningu ráðuneytisins segir að í sumar hafi verið fylgst náið með þróun og horfum í rekstri ferðaskrifstofa og að þrátt fyrir aukningu í sölu ferða í sumar og þrátt fyrir að sú aukning myndi halda sér út árið, sem ekki sé öruggt, sé „töluvert í að umsvif og lausafjárstaða ferðaskrifstofa verði þannig að þeim verði kleift að standa straum af umtalsverðum afborgunum af lánum frá Ferðaábyrgðasjóði.“
Þar segir jafnframt að aðstæður í ferðaþjónustu hafi „breyst hratt“ að undanförnu, meðal annars vegna breytinga á reglum á landamærum fyrir Íslendinga og þá sem hafa tengsl við landið, sem nú þurfa að framvísa neikvæðu PCR-prófi fyrir komuna til landsins.
„Þessar breytingar hafa dregið úr ferðavilja Íslendinga erlendis og dregið hefur úr bókunum ferðaskrifstofa. Í ljósi þeirrar óvissu í rekstri ferðaskrifstofa er það því samdóma mat aðila að íslenskar ferðaskrifstofur muni ekki geta greitt af lánum frá Ferðaábyrgðasjóði á gjalddaga 1. desember nk. nema í undantekningartilvikum. Því hefur ráðherra ákveðið að fresta gjalddaga fyrstu afborgana lána úr sjóðnum enn um sinn, eða til 1. desember 2022,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Þar er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu að það sé hennar mat að „hagsmunum ríkissjóðs og íslenskrar ferðaþjónustu sé best borgið með því að gjalddaga fyrstu afborgunar verði frestað“ og að ferðaskrifstofum muni með þeim hætti „gefast aukið svigrúm til að aðlaga rekstur sinn og bæta lausafjárstöðu sína.“