Fjármála- og efnahagsráðuneytið segir að því fari fjarri að það hafi beint tilmælum til Bankasýslu ríkisins sem hafi falið í sér tilraun til að reyna að hlutast til um skipan stjórnarformanns fjármálafyrirtækis. Í umsögn um frumvarp um lög um meðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum segir Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslunnar, að Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, hafi reynt að hlutast til um skipan stjórnarformanns fjármálafyrirtækis sem ríkið á eignarhlut í með símtölum við sig í júní og júlí 2014. Hann hafi einnig reynt að fá stjórnarfundi í sama fyrirtæki frestað. Jón Gunnar segist hafa mótmælt þessum afskiptum sem hann taldi ekki í samræmi við lög og að hann hafi auk þess upplýst stjórn stofnunarinnar um þau.
Kjarninn sendi fyrirspurn til fjármála- og efnahahagsráðuneytisins og óskaði eftir viðbrögðum vegna þessara ásakana. Í skriflegu svari ráðuneytisins segir að þegar sameining Sparisjóðs Bolungarvíkur við Sparisjóð Norðurlands stóð fyrir dyrum í júlí 2014 hafi verið óeining um sameininguna og að hætta var á að hún myndi ekki ganga eftir vegna óánægju heimamanna á Bolungarvík. „Fjármála- og efnahagsráðherra óskaði eftir því við ráðuneytisstjóra að þessum upplýsingum um óánægju heimamanna yrði komið á framfæri við Bankasýslu ríkisins þannig að leita mætti leiða til að tryggja samstöðu um sameiningu þessara tveggja sparisjóða í samræmi við markmið eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki, þar sem segir að stuðla skuli að hagræðingu í fjármálakerfinu, og stefnu Bankasýslunnar. Ræddi ráðuneytisstjóri í framhaldi af því við bæði þáv. formann stjórnar Bankasýslu ríkisins og forstjóra stofnunarinnar þar sem þessum áhyggjum og sjónarmiðum var komið á framfæri. Í þeim samtölum kom fram að e.t.v. væri möguleiki að seinka boðuðum stjórnarfundi hins sameinaða sparisjóðs ef það mætti verða til að tryggja að sátt gæti orðið um framhald málsins.
Ekki var af hálfu ráðuneytisins óskað eftir sérstökum trúnaði um þessi samtöl og því fer fjarri að þessi samtöl hafi falið í sér tilmæli af hálfu ráðuneytisins, enda er sérstaklega kveðið á um veitingu tilmæla frá ráðuneytinu til stofnunarinnar í lögum um Bankasýslu ríkisins“.
Í svari ráðuneytisins kemur einnig fram að málið hafi verið rætt innan þáverandi stjórnar Bankasýslunnar.