Fjármálastjóri Arion banka lætur af störfum

Sonur fyrrverandi bankastjóra Arion banka verður næsti framkvæmdastjóri fjármálasviðs hans. Sá sem stýrt hefur fjármálasviðinu frá 2010 hættir á næstu dögum.

Stefán Pétursson, fráfarandi framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka.
Stefán Pétursson, fráfarandi framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka.
Auglýsing

Stefán Pét­urs­son, sem stýrt hefur fjár­mála­sviði Arion banka frá árinu 2010, hefur látið af störf­um. Stefán tók tíma­bundið við starfi banka­stjóra Arion banka árið 2019 eftir að Hösk­uldur Ólafs­son lét af störf­um. 

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands kemur fram að Ólafur Hrafn Hösk­ulds­son taki við starfi hans. Ólafur er sonur Hösk­uld­ar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Arion banka, en hann hefur stýrt stýrt stefnu­mótun og þróun á skrif­stofu banka­stjóra frá árinu 2019. 

Stefán mun láta af störfum á næstu dögum en mun áfram sinna ráð­gjaf­ar­verk­efnum fyrir Arion banka. Í til­kynn­ing­unni þakkar Bene­dikt Gísla­son, banka­stjóri Arion banka, Stef­áni fyrir gott sam­starf og segir Ólaf, eft­ir­mann hans, þekkja bank­ann, stefnu hans og mark­mið afar vel. 

Auglýsing
Auk þessa var sú breyt­ing gerð á skipu­riti Arion banka Stein­unn Hlíf Sig­urð­ar­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri upp­lif­unar við­skipta­vina og tekur sæti í fram­kvæmda­stjórn. Við það fjölgar um einn í fram­kvæmda­stjórn Arion banka.  

Mik­ill hagn­aður

Arion banki hagn­að­ist um 13,9 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2021. Virði hluta­bréfa í bank­anum hefur nær þre­fald­ast frá því í fyrra­vor. 

­Arion banki hefur þá yfir­lýstu stefnu að greiða sem mest af umfram eigin fé sínu út til hlut­hafa. Á fyrri hluta yfir­stand­andi árs greiddi bank­inn næstum 18 millj­arða króna til hlut­hafa sinna í formi arðs eða end­ur­kaupa á bréfum þeirra.

Stefnan er að greiða út yfir 50 millj­arða króna til við­bótar á allra næstu árum með sama hætt­i. 

Stór hluti þeirra upp­hæðar mun fara til líf­eyr­is­sjóða, sem eiga nálægt helm­ings­hlut í bank­an­um. En fjöl­margir einka­fjár­festar munu einnig fá háar fjár­hæðir í sinn hlut, til við­bótar við hækk­un­ina sem orðið hefur á virði hluta­bréfa bank­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent